Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 01.07.1924, Qupperneq 12

Læknablaðið - 01.07.1924, Qupperneq 12
LÆKNABLAÐIÐ ío6 verið að tala um, a‘ö hefðu einhver af einkennum limafallssýkinnar (holds- veikis-erythem, tilfinningartruflanir, vöðvarýrnun, fingra- eða tá-kreppur, trofiskar truflanir o. s. frv.) Hingað til hefir árangurinn af baráttunni gegn holdsveikinni að mínu áliti gengiö betur, en hefði verið hægt að búast við. Undir læknastéttinni er það komið, hve langan tíma þarf til að út- rýma sjúkdómnum með öllu úr landinu. Það mun ganga nokkur tími til ])ess enn. Það eru drjúgar innansleikjurnar. Lögin frá 1898 og 1909 um holdsveikina, eru aö mínum dómi nægilega hörð, — liklega haröari en í ílestum öðrum menningarlöndum. Það er vafasamt, hvort rétt sé að heröa á þeim enn frekara, til þess að ná i nokkra aldraða limafallssjúka menn, þar sem sjúkdómurinn liefir staðið i stað óbreyttur svo árum og jafnvel áratugum skiftir, og enginn getur sagt með vissu um það, hvort þeir séu holdsveikir enn eða þeir beri að eins á sér afleiðingar liðinna holdsveikistima. Auðvitað geta sveitafélög- in flutt slika sjúklinga í holdsveikraspítalann lögum samkvæmt, ef þeir eru sveitar]mrfar, og eiga að gera það.* Það er áríðandi, að læknar hafi gát á börnum holdsveikra; hverir hafi verið holdsveikir i héruðunum, má s j á a f holdsveikrabók- u n u m. Menn verða að halda spurnum fyrir, hver börnin eru og hvar þau eru niður komin. Erfiðara mun verða, að hafa upp á því fólki, vanda- Iausu, sem sjúklingarnir hafa verið með. Því fyr, sem sjúklingarnir verða fluttir í holdsveikraspítalann, þess meiri likindi eru til, að sjúkdómurinn verði stöðvaður eöa batni, auk þess sem menn firra héruöiu hættu. Limafallssjúkir sjúklingar, með lepra progrediens, þar sem erythem- blettir eru enn i húðinni. eiga auðvitað að fara í holdsveikraspitalann. íþess- um blettum má stundum finna aragrúa af gerlum, og eins í nasaslími þeirra. Um verulega einangrun holdsveikra í sveitum vita allir læknar, að varla er hægt að tala í alvöru. Dr. Benedikt Einarsson í Chicago. í grein minni um íslenska kollega vestanhafs (i maíblaðinu), gleymd- ist mér að geta um elsta islenska læknirinn, sem praktiserar þar vestuv frá. Þaö er Dr Benedikt Einansson, senn urn langan tíma hefir búið i Chicago, og unnið sér ]var inikla hylli, sem ágætur kirurg. Hanu er ættaður úr Mývatnssveit. Fór ungur vestur. Vann ]iar með dugnaði líkamlega vinnu, — fór svo að læra til læknis, og tók próf. Hann lifði lengi ókvæntur, en giftist loks sænskri stúlku (hjúkrunar- konu) og á með henni tvö einstaklega efnileg börn. Hann er kominn nær sjötugu, og þar eð hann mest allan aldur sinn hefir talað enska tungu, * Mér hefir verið sagt, að einhver liafi hreyft því í vetur á þingi, að jafnóðum og rúm losnuðu í holdsveikraspítalanum, ætti að fylla upp í það skarð méð öðrum sjúklingum. Líklegast hefir það eigi verið sagt í alvöru, því allir ættu að geta skilið, að það væri ekki heppilegasta ráðið í holdsveikisbaráttunni.

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.