Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.11.1927, Síða 19

Læknablaðið - 01.11.1927, Síða 19
LÆKNABLAÐIÐ *77 aö trúa sögoinni af því, hvernig Stórabóla barst til lands vors í fatnaöi manns, er dáið haföi ytra!). Bólusetning er hesta vörnin. Mislinga- og skarlatssóttarsýkiarnir eru mjög hrör- legar verur, og smitun á sér aöallega staö um meðgöngutimann, írá sjuk- lingunum, og frá vægum tilfellum, sem enginn varar sig á. Barnaveikissýkillinn er einnig afar skammlífur utan lík- amans. \firleitt má segja, aö sótthreinsun með eiturlyfjum sé engu gagnlegri en sápuþvottur. Rannsóknir í Bandaríkjunum, á þýöingu loKasóttnreins- unar eins og áður tíðkaöist, hafa leitt í ljós, aö þær höfðu alls enga yfirburöi yfir húsræstingu þá, sem nú tíðkast. Margir eru enn meðmæltir gömlu sótthreinsunaraöferöinni, þótt þeir viti að hún sé kák eitt. Þeir halda því fram, að fólk veröi óhræddara og rólegra, meðan henni sé haldið áfram. Höfundurinn álítur þetta rangt. Hiö eina rétta sé að kenna fólki þaö, sem viö hyggjum vera satt og rétt, og vera ekki að eyða stóri'é fyrir eiturlyf til ónýtis. Gamla sótthreinsunm kostar mikið fé. Því væri betur varið til aö koma á betra eftirliti meö einangrun sjúklinga og varúö gegn smitberum. VII. Antiseptik L i s t e r s, sem reyndist svo mikil framför í sáralækn- ingunum, vakti upp gömlu trúna, að unt væri aö eyða með eiturlyfj- um á róttækan hátt orsökum allra næmra sótta, og koma með því í veg fyrir farsóttir og smitun. Hin affarasæla notkun karbólsýrunnar við skurði haföi í för meö sér mestu tröllatrú á þessu lyíi og öörum sterkum eiturlyfjum, til sóttvarna. Nú líta læknar svo á, að þvottur og hreinlæti hafi verið aðalatriöiö, en ekki karbólvatnið. Og eins og kunnugt er, hefir antiseptikin viö sáralækningar smám saman orðið aö þoka fyrir aseptik’ inni. Eiturlyfin reyndust bæöi óíullnægjandi og skaöleg. Þaö mátti meira og meira sleppa viö eiturnotkunina, en í þess staö viðhafa ítarlegan þrifnaö og láta sér nægja sótthreinsun á umbúðum og verkfærum með miklum hita. Oftraust á karbólsýru og öðrum sóttvarnarlyfjum er enn afaralgeng meðal alþýöu, enda er það engin furða, því viö læknarnir höfum til skamms tíma verið þar um afarkreddufastir, eins og um fleiri hleypi- dóma. Eg man eftir lækni, þegar eg var barn, sem greiddi sér úr kar- bólvatni og blej'tti með því í fötum sínum, til aö verjast sóttum. Þegar eg var í skóla og inflúensan gek!k i bænum, lét skólalæknirinn, dr. Jónassen, skvetta óhreinsaöri karbólsýru um öll gólfin. Og þegar eg var í háskólanum, er mér minnisstætt, aö yfirljósmóö- irin á fæðingarstofnuninni, roskin maddama frá próf. Stadfeldts tíö, geröi lítiö úr öllu umstanginu viö handþvottinn, sem viö læröum hjá próf. L e o p o 1 d M e y e r, en sjálf lét hún sér nægja aö dýfa fingr- unum í karbólvatnið, áöur en hún kannaði konurnar. Eg þekki alþýðumenn, sem þykjast kunna að verjast sóttum, meö þvi aö éta lítið eitt af kreólíni daglega, og algengt er aö fólk trúir enn fast- lega á að stökkva á gólfið og dýfa fingrunum í karbólvatn.

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.