Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.07.1934, Page 22

Læknablaðið - 01.07.1934, Page 22
84 LÆKNABLAÐIÐ þessari aöferö. 'Sú von hefir því miöur ekki ræst. Þó er ví'öa lögö áhersla á aö röntgengeisla cancer mammæ á undan operation, t. d. í Svíþjóö og Frakklandi. Hin stefnan í röntgenlækningum er sú galliska eða franska, oft kend viö Coutard, viö Curie-stofnunina í París. Þá er ekki leitast við aö eyða cancer-vef með intensiv geislun á stuttum tíma, sem í fljótu bragði sýnist vænlegast til árangurs. Aðferöin er öfug. Röntgengeislarnir eru „fraction- eraðir“ og áhersla lögð á langvarandi geislun. Þetta er m. a. gert með því að geisla úr mikilli fjarlægð. Ef geisla skal sjúkl. úr tvöfaldri fjarlægð, þarf eg 4 sinnum lengri tíma til a'Ö ná sama dosis. En þessi stefna hefir einmitt mikla trú á því, að tumor sé tiltölulega lengi á dag undir röntgen- áhrifum. Coutard trúir á aukna „elektiv“ verkun á cancer, með þessu móti. Og það er vafalaust stundum hægt aö eyða ca. laryngis með þessari til- högun. Það verður verkefni næstu ára, að bæta aðferðina þannig, að henni verði beitt við cancer i öðrum slímhúðum. Þetta er ekki meinlaus aðferð, því geisluninni veröur að halda svo lengi áfram aö skóf komi á slímhúðina, eins og við diphteritis. I röntgenlækningunum á sér sífelt stað samvinna milli lækna og verk- fræðinga, um umbætur á áhöldunum. Ein merkasta nýjungin á þessu sviði er trygging gagnvart háspennu („Hochspannungssicherung"), sem er ekki nema 2—3 ára gömul. Með þessari umbót er óhætt, að röntgenlampi og háspennuleiðslur snerti sjúkling og starfsfólk, og er þetta til ómetanlegra þæginda við erfiðar geislanir, þar sem óþægilegt er að komast að, t. d. í regio ano-genitalis, í handarkrika eða hálsi. Jeg held að það þurfi ekki sérlega bjartsýna menn, til þess að gera sér miklar framtíðarvonir um árangur af geislalækning við krabbameini. Það er t. d. sýnt og sannað, að radíum getur grætt stór og djúp cancer- sár við legkrabba, þó áhrifin séu því miður ekki svo langdræg, að þau nái út í parametria. Margir geislalæknar halda, að framtíðarlausnin sé sú, að fullkomna svo röntgenlampana, að unt verði að ná úr þeim jafn djúptækum áhrifum á cancer, eins og radíum hefir nú, það sem það nær. Þá ætti að mega röntgengeisla cancer uteri per abdomen, en geisla þá vitanlega um leið metastaser i kviöarholinu, og gera sér von um jafn mikil áhrif á canser í parametria, eins og nú fást með radíumgeislun á collum-sárin. Það hefir ekki lent viö orðin tóin, og þeir vísindamenn, sem vinna að röntgenfysik eru á leiðinni með úrlausn á þessu atriði. Verkefni þeirra er m. a. að framleiða röntgengeisla sama eðlis sem gamma-geislarnir, er radíum geíur frá sér, þ. e. a. s. með sömu öldulengd og krafti til þess að komast gegnum flest sem fyrir er, jafuvel þunga málrna. Eðlisfræð- ingarnir telja, aö þetta sé hægt með því að útbúa lampa sem þola 2 miljóna volta straumspennu. A tilraunastöðvum, t. d. á Charité-spítalanum í Ber- lín, og í Ameríku, eru eðlisfræöingarnir og geislalæknarnir farnir aö nota alt að 1 miljón volta spennu, svo væntanlega verður þetta tekniska atriði leyst. En svo er vitanlega eftir að prófa árangurinn við krabbamein. I þessu stutta erindi hefi cg ekki íarið neitt út í kasuistik, cn aðeins stiklað á þeim aðalatriðum sem ráða í radiotherapi nútímans, við krabba-

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.