Læknablaðið - 01.07.1934, Síða 23
LÆKNABLAÐIÐ
85
mein. En ])ó aSeins hafi veriö tæpt á því helsta, sést ljósleg-a, aS geisla-
læknarnir eru vel vakandi viö krabbameinslækningarnar, og vænta sér
mikilla umbóta á þessu sviði, á næstu árum. Vísindagreinin er ekki nema
rúmlega 30 ára gömul. og ])að er stuttur tími í sögu vísindanna. En ef
dæma má af þvi, sem þegar hefir áunnist, ætti a'S mega vænta sér mikils
í framtíðinni.
(Me’ð fyrirlestrinum voru sýndar skuggamyndir af nokkrum sjúkl. me'ð
cancer cutis, sem læknast höfðu með röntgen eða radíurn).
Færanleg1 Röntgentæki
eftir Ól. ð. Lárusson, Vestmannaeyjum.
Um áramótin 1932—'33 fékk eg mér færauleg Röntgentæki, Coolinax
II, frá Sanitasverksmiðjunni i Berlín. Þau kostuðu þá meÖ nauíSsynleg-
um áhöldum til myndatöku og gegnlýsinga, um 2500 G.M. í Berlin. Þar
við bætist svo umbúnaður, burðargjáld, tollur o. fl. BræÖurnir Ormsson
í Reykjavík eru umboðsmenn SanitasverksmiÖjunnar hér á landi. Reynsla
min af tækjunum er i stuttu máli þessi:
Þau eru góð við allskyns gegnlýsingu útlima, og ennfremur liafa þau
reynst mér ágætlega við gegnlýsingar á brjósti, sérstaklega á þeim, sem
ekki eru mjög feitlagnir. Þó ber vel að gæta þess, að rafspenna sé eins
há og vera ber, og hefi eg Voltamælir, og geri rafstöðinni hér aðvart, ef
ávantar í hvert sinn. Vitaskuld verða augun að venjast dimmu áður. Einn
höfuðkostur þessara tækja við gegnlýsingar og myndatöku er sá, að þau
eru háspennu-trygg, svo að hægt er að hafa þau eins nærri og manni sýn-
ist. Annar kostur er sá, að við gegnlýsingar er hægt að nota þau í björtu
herbcrgi, með öðrum orðum: Þau þurfa ekki að vera í „dimmu herbergi“,
vegna þess, að dimma skotið fæst með svo nefndu „Kryptoscop", þ. e. Gegn-
lýsingarskermurinn er festur á ferstrendan, sundurdreginn belg og fellur
endi hans, þegar hann er sundurdreginn, að augum og nefi, og kolníða-
myrkur innan í áður en geislað er. Lampann má færa upp og niður eftir
vild og snúa honum. Það er ekki i stuttu máli hægt að lýsa þægindum
færanlegra Röntgentækja. Þau má nota á aðgerðastofum og við rúmliggj-
andi sjúklinga.
Þegar beitibrot eru gegnlýst og löguð í gegnlýsingu og bundið um, er
nauðsynlegt að gegnlýsa, þegar búið er að binda um, t. d. gipsa, eins til að
kontrollera brot, sem teigja er notuð við.
Séu Röntgentæki t. d. föst á kjallarahæð, er sjúklingurinn gegnlýstur
jiar, síðan þarf að fara með hann upp á aðgerðastofu, svæfa hann og gipsa
og svo aftur niður þegar umbúðirnar eru hálfblautar og gegnlýsa hann þar,
eða hiða til næsta dags eða næstu daga. I þessu ferðalagi vilja brot oft
fara úr lagi, og hliðra menn sér hjá nauðsynlegutn rannsóknum, af þess-
um sökum.
Við útlimamyndun hafa tækin reynst mér mesti þarfagripur. Myndir
bæði skarpar og glöggar. Eg get ekki hugsað mér að missa af þeim meðan
ég fæst við læknisstörf. Mér fyndist það svipað og að missa til muna sjón,
en þá get eg eigi við læknisstörf fengist, ef óbætanlegt er. Ef til vill mun