Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 01.07.1934, Qupperneq 23

Læknablaðið - 01.07.1934, Qupperneq 23
LÆKNABLAÐIÐ 85 mein. En ])ó aSeins hafi veriö tæpt á því helsta, sést ljósleg-a, aS geisla- læknarnir eru vel vakandi viö krabbameinslækningarnar, og vænta sér mikilla umbóta á þessu sviði, á næstu árum. Vísindagreinin er ekki nema rúmlega 30 ára gömul. og ])að er stuttur tími í sögu vísindanna. En ef dæma má af þvi, sem þegar hefir áunnist, ætti a'S mega vænta sér mikils í framtíðinni. (Me’ð fyrirlestrinum voru sýndar skuggamyndir af nokkrum sjúkl. me'ð cancer cutis, sem læknast höfðu með röntgen eða radíurn). Færanleg1 Röntgentæki eftir Ól. ð. Lárusson, Vestmannaeyjum. Um áramótin 1932—'33 fékk eg mér færauleg Röntgentæki, Coolinax II, frá Sanitasverksmiðjunni i Berlín. Þau kostuðu þá meÖ nauíSsynleg- um áhöldum til myndatöku og gegnlýsinga, um 2500 G.M. í Berlin. Þar við bætist svo umbúnaður, burðargjáld, tollur o. fl. BræÖurnir Ormsson í Reykjavík eru umboðsmenn SanitasverksmiÖjunnar hér á landi. Reynsla min af tækjunum er i stuttu máli þessi: Þau eru góð við allskyns gegnlýsingu útlima, og ennfremur liafa þau reynst mér ágætlega við gegnlýsingar á brjósti, sérstaklega á þeim, sem ekki eru mjög feitlagnir. Þó ber vel að gæta þess, að rafspenna sé eins há og vera ber, og hefi eg Voltamælir, og geri rafstöðinni hér aðvart, ef ávantar í hvert sinn. Vitaskuld verða augun að venjast dimmu áður. Einn höfuðkostur þessara tækja við gegnlýsingar og myndatöku er sá, að þau eru háspennu-trygg, svo að hægt er að hafa þau eins nærri og manni sýn- ist. Annar kostur er sá, að við gegnlýsingar er hægt að nota þau í björtu herbcrgi, með öðrum orðum: Þau þurfa ekki að vera í „dimmu herbergi“, vegna þess, að dimma skotið fæst með svo nefndu „Kryptoscop", þ. e. Gegn- lýsingarskermurinn er festur á ferstrendan, sundurdreginn belg og fellur endi hans, þegar hann er sundurdreginn, að augum og nefi, og kolníða- myrkur innan í áður en geislað er. Lampann má færa upp og niður eftir vild og snúa honum. Það er ekki i stuttu máli hægt að lýsa þægindum færanlegra Röntgentækja. Þau má nota á aðgerðastofum og við rúmliggj- andi sjúklinga. Þegar beitibrot eru gegnlýst og löguð í gegnlýsingu og bundið um, er nauðsynlegt að gegnlýsa, þegar búið er að binda um, t. d. gipsa, eins til að kontrollera brot, sem teigja er notuð við. Séu Röntgentæki t. d. föst á kjallarahæð, er sjúklingurinn gegnlýstur jiar, síðan þarf að fara með hann upp á aðgerðastofu, svæfa hann og gipsa og svo aftur niður þegar umbúðirnar eru hálfblautar og gegnlýsa hann þar, eða hiða til næsta dags eða næstu daga. I þessu ferðalagi vilja brot oft fara úr lagi, og hliðra menn sér hjá nauðsynlegutn rannsóknum, af þess- um sökum. Við útlimamyndun hafa tækin reynst mér mesti þarfagripur. Myndir bæði skarpar og glöggar. Eg get ekki hugsað mér að missa af þeim meðan ég fæst við læknisstörf. Mér fyndist það svipað og að missa til muna sjón, en þá get eg eigi við læknisstörf fengist, ef óbætanlegt er. Ef til vill mun

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.