Kraftur - 01.05.2010, Blaðsíða 8
8 KRAFTUR
Stuðningsnet Krafts fer
sístækkandi og hróður þess
berst víða. Aðeins er rúmt
ár síðan fyrsta námskeiðinu
fyrir stuðningsfulltrúa var
hleypt af stokkunum og nú
fyrir páskana hófst þriðja
námskeiðið. Stuðningsnetið er
hópur sjálfboðaliða sem hafa
annað hvort fengið krabbamein
eða verið aðstandendur
krabbameinsgreindra, og vilja sýna öðrum í
sömu sporum stuðning. Stuðningsfulltrúarnir
sækja sérstakt námskeið þar sem þeir læra
um og þjálfast í jafningjastuðningi. þeir sem
hringja í stuðningssíma krafts geta óskað
þess að komast í samband við fulltrúa sem
hefur glímt við sömu tegund af krabbameini
eða lent í svipuðum aðstæðum og þannig
rætt við aðra manneskju með sameiginlega
reynslu á jafningjagrundvelli.
Gyða Eyjólfsdóttir, sálfræðingur, sérhannaði
námskeiðið fyrir Kraft, sér um þjálfun
stuðningsfulltrúa og heldur utan um nýtingu
Stuðningsnetsins. „Fyrsta námskeiðið
var prufunámskeið með 9 þátttakendum.
Það var helgarnámskeið
en þáttakendur lögðu til
að fræðslunni yrði dreift
á fleiri daga því þetta var
aðeins of knappur tími til að
meðtaka allt efnið. Á öðru
námskeiðinu voru líka 9
þátttakendur og fór kennslan
fram á fjórum kvöldum,
einu á viku.“ Eftir fyrstu tvö
námskeiðin komu fram óskir
um að ýtarlegar yrði farið í aðstandendamál
svo nú þegar þriðja námskeiðið hófst var enn
búið að betrumbæta námskeiðið.
Það eru reyndar ekki einungis Kraftsfélagar
sem sækja námskeiðið núna því félagar
í öðrum stuðningsfélögum innan
Krabbameinsfélagsins hafa sóst eftir að
sitja námskeiðin enda hefur Stuðningsnetið
vakið talsverða athygli meðal þeirra. Einnig
þykir fagfólki mikið til Stuðningsnetsins
koma og þá ekki síst fagmennskunnar að
baki þjálfuninni og metnaðarins sem Kraftur
leggur í þetta mikilvæga verkefni, að veita
stuðning.
Gyða segir stuðningsfulltrúana á öllum
aldri, frá 22 til 69 ára, fólk sem hefur sjálft
greinst, dætur greindra, mæður greindra og
makar greindra. „Bæði karlar og konur sinna
stuðningi og við reynum okkar allra besta til að
mæta þörfum þeirra sem biðja um stuðning.
Við fáum töluvert af beiðnum í gegnum
Ráðgjafarþjónustuna og viljum gjarnan
fá fleiri beiðnir frá LHS, en það hlýtur að
koma eftir því sem hróður Stuðningsnetsins
eykst innan heilbrigðisstéttarinnar.“ Þá
segir Gyða að í nánustu framtíð langi
hana til að sjá meira samstarf milli LHS
og Stuðningsnetsins. „Fulltrúarnir okkar
koma aldrei í stað heilbrigðisstarfsfólks
enda er það ekki markmiðið, heldur að
veita jafningjastuðning, vera til staðar með
nærveru, hlustun, virðingu og hluttekningu
einhvers sem á svipaða reynslu að baki.
Það getur verið ómetanlegt fyrir þann sem
er krabbameinsgreindur, eða aðstandendur
hans, að heyra að einhver annar hafi upplifað
sömu tilfinningar við svipaðar aðstæður.“
óMetanlegur Stuðningur
www.elding.is
Ævintýri á sjó
frá Reykjavíkurhöfn
Umhverfisverðlaun
Ferðamálastofu Íslands
Hvalaskoðun allan ársins hring
Sjóstangaferðir frá 1. maí til 31. ágúst
Lundaskoðun frá 15. maí til 15. ágúst
Viðeyjarferðir allan ársins hring
Frítt í Hvalasetrið - sýning um lífríki hafsins
Sími: 555 3565
Álfheimar 74 Sími: 414 4000 hreyfi ng@hreyfi ng.is www.hreyfi ng.is
Hreyfi ng býður Ljósberum að æfa
sér að kostnaðarlausu.
Skráning hjá Ljósinu
Flott aðstaða og góðir tímar.