Kraftur - 01.05.2010, Qupperneq 10
10 KRAFTUR
Miklu fargi er af fólki létt þegar ljóst er að
baráttan við krabbamein hefur sigrast.
Fjöldi krabbameina á Vesturlöndum hefur
farið hækkandi og meðferðarrúrræðum
fleygt fram sem þýðir að sífellt fjölgar í
hópi þeirra einstaklinga sem hafa lifað af
krabbameinsmeðferð. Baráttan er oft löng
og ströng og því ekki að undra að ummerki
hennar séu talsverð. Meðferðin tekur sinn
toll, örin geta verið líkamleg og andleg og
margir lifa með afleiðingum krabbameinsins
um ókomin ár. Þær afleiðingar sem fólk býr
við eru margþættar og ólík meðferðarúrræði
bera með sér mismunandi afleiðingar. Bæði
skurðaðgerðum og lyfjameðferðum geta
fylgt vitsmunaleg vandamál, kynlífsvandi og
ófrjósemi en frekari útlistun á afleiðingum
meðferðarforma eru eftirfarandi:
Skurðaðgerðir:
• Ör
• Sogæðabólga
• Hreyfiskerðing
• Vandi við að nærast
• Aflimun
• Verkir
• Tilfinningalegt álag ef fólk er meðvitað
um líkamlegar breytingar- jafnvel þótt
breytingarnar séu ekki öðrum sýnilegar.
Lyfjameðferðir:
• Þreyta
• Snemmbúið breytingaskeið
• Ófrjósemi
• Veikindi tengd hjarta- og /eða
lungnastarfsemi
• Nýrna og þvagvandamál
• Taugaskemmdir, dofi og kitl í ákveðnum
svæðum líkamans.
• Vöðvarýrnunun
• Beinþynning
• Breyting á áferð og útliti hárs og nagla
• Meinvörp og endurkoma krabbameins
Geislameðferð :
• Ský á auga
• Langvarandi hárleysi
• Tannskemmdir
• Skortur á tára- og/eða
munnvatnsframleiðslu
• Skjaldkirtilsvandamál
• Áhrif á hormónaframleiðslu og
heilaköngul
• Hreyfiskerðing
• Viðkvæm húð
• Ristilsvandamál
Algengar tilfinningar og áhyggjur í kjöfar
krabbameinsmeðferðar eru reiði, ótti, sorg,
leiði, þunglyndi, kvíði, óvissa um framtíðina,
áhyggjur af verkjum og þreytu, líkamsímynd
og af samböndum.
Aðrar afleiðingar sem krabbameinsmeðferð
kann að hafa í för með sér:
• Erfiðleikar með vinnu vegna líkamlegra
eða andlegra kvilla
• Breytingar á sambandi við maka, ástvini
og samstarfsfólk
• Vandi við að kaupa heilsu-og
líftryggingar
• Erfiðleikar við að tjá heilbrigðisfólki
heilsufarsáhyggjur sínar
• Fjárhagsáhyggjur
• Mismunun á vinnustað
Af ofantöldu má sjá að þótt að krabbameinið
sé á bak og burt getur fólk þurft að eiga við
ýmsa kvilla í kjölfar meðferðar sem hafa þó
mismikil áhrif á líf þess. Fólk kann að upplifa
vanlíðan og því dýrmætt að mæta skilningi
á aðstæðum. Mikilvægt er að samfélagið
létti undir með fólki eftir því sem kostur er
á, til dæmis getur tilfallandi kostnaður við
að viðhalda eða bæta heilsuástandið verið
hár. Í það minnsta ættum við að fara varlega
í að dæma bókina af kápunni því fæstir bera
afleiðingar krabbameinsmeðferðar utan á
sér.
Við leituðum til nokkurra Kraftsfélaga til að
heyra hvaða afleiðingar hefðu fylgt í kjölfar
þeirra krabbameinsmeðferða. Hér fylgja
tilvitnanir í svörin og svo lengri sögur tveggja
kvenna sem hafa mátt reyna ýmislegt.
,,Ég er með töluvert minni orku en áður“
,,Mig vantar ný föt því það vantar á mig fót!“
,,Steragjafir höfðu áhrif á liðmót sem leiðir til
hreyfiskerðingar“
,,Krabbameininu fylgdi svefnleysi sem hefur
valdið því að ég hef lent inná spítala oftar
en einu sinni vegna þunglyndi, depurðar og
tilgangsleysis.“
Guðný Kristrún Guðjónsdóttir, 31 árs:
,,Það sem ég hef þurft að fást við í kjölfarið
á krabbanum hefur reynt meira á mig en
krabbinn sjálfur. Fyrir utan að missa heyrn á
hægra eyra þegar æxli í höfðinu var fjarlægt
hef ég núna suð/hátíðnihljóð í báðum eyrum
sem er afleiðing lyfja- og geislameðferðar.
Auk þess er ég með hellu fyrir eyranu sem
ég heyri með.
langvaranDi og SÍðbúnar
afleiðingar KrabbaMeinS
Þegar heilsan er í húfi
heildarlausnir fyrir lækningu,
hjúkrun og endurhæfingu