Kraftur - 01.05.2011, Blaðsíða 8

Kraftur - 01.05.2011, Blaðsíða 8
8 KRAFTUR HUGVEKJA Um daginn horfði ég japönsku kvikmyndina ,,Ikiru“ sem á íslensku myndi heita ,,Að lifa“. Sagan er um ekkil á sextugsaldri, Kanji, sem starfar í ráðhúsi í Japan en finnst starf sitt hvorki merkilegt né gefandi. Hann gerir ekki meira í vinnu sinni en hann þarf og hefur lítinn áhuga á að þjóna fólki sem hann mætir þar. Ung kona sem vinnur með honum kallar hann múmíu, því hann virðist ekki hafa áhuga á einu né neinu. En dag nokkurn uppgötvast að Kanji er komin með krabbamein og á aðeins 6-7 mánuði eftir ólifaða. Hann fylltist örvæntingu og sorg. Hann reynir að leita að lífsfyllingu í innantómum skemmtunum en á endanum verður hann að horfast í augu við breyskan sannleikann: ,,Ég hef ekki gert neitt við líf mitt.“ LEIKVÖLLURINN BJARGAÐI LÍFI Nokkrir borgarar höfðu lengi óskað eftir leikvelli í hverfinu en enginn í bæjarstjórninni hafði viljað verða að óskum þeirra. Kanji ákvað að taka þetta mál upp á sína arma. Þegar hann byrjaði var eins og hann yrði annar maður. Hann var ekki lengur eins og múmía. Hann þurfti að yfirstíga margar hindranir en þegar hann stóð á vellinum þegar hann var opnaður uppgötvaði hann að hann hafði upplifað hamingju og ánægju og þannig dó hann. Sagan á sér stað eftir stríðslok seinni heimsstyrjaldarinnar í Japan, þegar verið var að byggja upp þjóðfélagið á ný, frá fátækt til velferðar, frá vonleysi til nýrra vonar. Myndin er full af hlýrri kímnigáfu og þar er mikið grín gert að skriffinnsku Japana og skort á skapandi anda og virkri starfsorku. En aðalatriðið í sögunni er þetta: ,,Hvernig á maður að lifa lífi sínu?“ Ein aðferð til þess að nálgast efnið er að setja fram eftirfarandi spurningu: ,,Hvernig hugsar maður um eigið líf ef maður veit hvenær því lýkur?“ Í sögunni ,,Ikiru“ vaknaði Kanji í ,,sönnu lífi“ eftir að hann fékk að vita um örlög sín og öðlaðist aftur tilfinningu fyrir tilgangi lífsins. MEÐVITUND UM VIRÐI LÍFSINS Þetta er að sjálfssögðu aðeins kvikmynd. Kanji er hvorki siðferðileg né sálfræðileg fyrirmynd og það er ekkert raunsærra að bregðast við eins og Kanji þegar dauðann ber að garði en einhvern veginn öðruvísi. Örlög Kanji er aðeins dyr sem leiða okkur til einnar afstöðu um eigið líf, dauða og örlög. ,,Manneskja verður meðvituð um virði lífssins rétt áður en því lýkur. Mig langaði að lýsa þessum algenga harmleik manna,“ segir leikstjórinn Kurosawa. Við vitum öll að einhvern daginn munum við deyja. Það er eitt. En það er annað að vera alltaf meðvituð um dauða okkar. Við lifum yfirleitt okkar hversdagslífi án þess að hugsa til dauðans, við gleymum honum nema eitthvað minni okkur á hann. FÓLK VANRÆKIR DAGINN Í DAG Það er ef til vill þess vegna sem fólk getur venjulega ekki hugsað um eigin dauða, þar sem hann er svo fjarri og óraunsær í hversdagslífinu. Það er ekki nema að viðkomandi sé í starfi sem er hættulegt eða glímir við hættulegan sjúkdóm sem það hugsar lífið upp á nýtt. En það er einmitt í hversdagsleikanum að hættan verði sú að við teljum lífið svo sjálfsagt, að við teljum það svo sjálfsagt að morgundagurinn komi að við vanrækjum að gera hvern dag þess virði að lifa hann. Hvað varðaði Kanji í ,,Ikiru“, þá vanrækti hann lífið, og sú vanræksla var mikil. Hins vegar má einnig segja að jafnvel þótt við vitum ekki hvenær við hverfum úr hinu jarðneska lífi og að raunar gæti dauðinn komið til okkar á morgun, þá verðum við samt að lifa í dag samkvæmt þeirri forsendu að ,,lífið haldi áfram á morgun líka,“ af því að annars getum við ekki haft framtíðarsýn. Og án framtíðarsýnar getum við ekki byggt upp okkur sjálf eða samfélag okkar. AÐ VERA MEÐ SPRENGJU Á BAKINU Það eru því einnig örlög okkar mannanna að þurfa að ganga áfram, þrátt fyrir að vera með sprengju á bakinu, sem er dauðinn, en við trúum því og vonum að sprengjan springi ekki strax. Ef við erum látin vita af því hvenær sprengjan springur, þá gæti sú vitneskja verið bæði bölvun fyrir okkur og blessun. Ef maður óttast mikið og er hræddur við dauðann, þá er vitneskjan bölvun. Ef manni tekst að ákveða að eyða þeim dögum sem eru eftir og gefa þeim virði, þá er hún blessun. Á sama hátt getur það einnig verið bæði bölvun og blessun að vita ekki hvenær dauði manns kemur. Það getur verið blessun að þurfa ekki að vera hræddur við dauðann og geta notið lífs síns til hinsta andartaks. En samtímis getur það verið bölvun ef maður hefur ekki tök á að kveðja ættingja og vini vegna skyndilegs dauðfalls. Við getum ekki ráðið því hvenær við deyjum, hvort sem við vitum af því eða ekki. Það sem við getum gert er að gleyma ekki virði eigin lífs og berum virðingu fyrir því frá degi til dags og byggja líf okkar upp á þeirri jákvæðu forsendu að ,,lífið haldi áfram.“ AÐ LIFA – MEÐ SPRENGJU Á BAKINU EFTIRFARANDI HUGVEKJA ER EFTIR TOSHIKI TOMA, PREST INNFLYTJENDA. HÚN FJALLAR UM LÍFIÐ OG DAUÐANN OG HVERNIG VIÐ GÆTUM HUGSAÐ UM OG SKYNJAÐ LÍFIÐ EF VIÐ VITUM AÐ DAUÐINN ER NÁLÆGUR. ,,Hvernig hugsar maður um eigið líf ef maður veit hvenær því lýkur?“ „Og án framtíðarsýnar getum við ekki byggt upp okkur sjálf eða samfélag okkar.“ Toshiki Toma segir að vitneskjan um dauðann gæti bæði verið bölvun og blessun.

x

Kraftur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kraftur
https://timarit.is/publication/982

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.