Kraftur - 01.05.2011, Blaðsíða 16

Kraftur - 01.05.2011, Blaðsíða 16
16 KRAFTUR FÓLK SAMEINAÐIR Á SUMARGRILLI Sumargrillið er árlegur vettvangur Krafts-félaga til þess að sýna sig og sjá aðra. Undanfarin ár hefur það verið haldið við ylströndina í Nauthólsvík og það er sama hvernig hefur viðrað, alltaf hefur fjöldinn mætt, gamlir félagar brosað og faðmast. Börnin hafa brugðið á leik í leiktækjum sem hafa verið á svæðinu eða leikið sér í sandinum og sjónum. Hún er einstök stemmningin í sumargrilli Krafts og það er eins og einhver sumarkraftur læði sér í gjóluna sem stundum smeygir sér með í partýið. Hérna eru myndir frá sumargrillinu 2010. Skoðið og sjáið Krafts-félaga á góðri stundu, sameinaða eins og alltaf. „Sumargrillið í ár fer fram fimmtudaginn 30. júní. Atlantsolía, Kjörís, Ölgerðin, Skátarnir og ÍTR standa að deginum með okkur. Taktu daginn frá!“

x

Kraftur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kraftur
https://timarit.is/publication/982

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.