Kraftur - 01.11.2010, Síða 14
14 KRAFTUR
„komdu sæl ég
ætla að fá tvo
BeikonBáta
hjá þéR“?
-hUgleiðing STjóRnARmAnnS
Fyrir nokkrum árum greindist ég með Hodgkins eitilkrabbamein.
Á svipstundu breyttist líf mitt og ég var farinn að hanga með hópi
af heldra fólki tvisvar í mánuði. Ég man eftir því að bragðskyn mitt
breyttist og ég fékk „cravings“ í óhollan mat. Á þessum tíma bjó ég
heima hjá foreldrum mínum og lifði frítt og því var það
óvænt að fá endurhæfingarlífeyri. Ég gat keypt mér alla
þá óhollustu sem mig langaði í og fann ákveðna huggun í
mat. Ég keypti mér oft Nonnabita eða annan skyndibita og
skolaði því niður með Husk blöndu svo að ég myndi ekki
stíflast. Ég heyrði um stelpu sem hafði keypt sér hest fyrir
endurhæfingarlífeyrinn sinn og þá fór ég virkilega að hugsa
hvað ég hafði eiginlega gert við endurhæfingarlífeyrinn
minn? Það getur verið notalegt til skamms tíma að borða
óhollan mat og vera góður við sjálfan sig. Ég meina,
maður er nú einu sinni í krabbameinsmeðferð. En til
lengri tíma er þetta ekki það sniðugasta sem maður gerir.
Skilaboðin mín eru, borðið hollt og reynið að eyða ekki
öllum endurhæfingarlífeyrinum í vitleysu.
Jóhannes Þorleiksson, stjórnarmaður í Krafti
Íslensk framleiðsla
á stílabókum og gjafaöskjum fyrir handverksfólk og verslanir
Úrval af allskonar öskjum, tilvalið fyrir handverksfókið
Stílabækur A4 og A5 fjórir litir
NÝTT
48 BL
S
Stílabækur,
stórar og litlar,
fjórir litir
Verkefna- og
úrklippubók, fjórir litir Bæjarhrauni 20 – Sími 553 8383
enduRfundiR mh-inga leiða
til góðs
Á dögunum afhentu útskrifaðir MH-nemar Krafti stuðningsfélagi fyrir ungt fólk með krabbamein
og Minningarsjóði Kristjáns Eldjárns gítarleikara styrk að upphæð 200.000 krónur. Svokölluð
endurfundanefnd úr Menntaskólanum við Hamrahlíð stóð fyrir samkomu nemenda sem útskrifuðust
frá MH á árunum 1986-1990. Í bréfi nefndarinnar sem lesið var upp við afhendingu segir að ákveðið
hafi verið að reisa ekki minnisvarða með orðabókum, trjáplöntum eða innrömmuðum partímyndum
heldur að nota afganginn af aðgangseyrinum til að þakka fyrir sig og minnast látins skólafélaga. „Við
viljum þakka fyrir þá og þær úr okkar hópi sem hafa fengið stuðning, kraft og styrk til að vinna á
sjúkdómi sínum hjá Krafti og til að þakka fyrir að hafa fengið að kynnast Kristjáni Eldjárn og njóta
hæfileika hans, en hann lést úr krabbameini í apríl 2002“.
Það voru þau Páll Óskar Hjálmtýsson, Brynhildur Björnsdóttir og Hugrún Hólmgeirsdóttir sem afhentu
styrkinn í húsakynnum Krafts í Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins sunnudaginn 31. október en
einnig kom Ragnheiður Eiríksdóttir að skipulagningu endurfundanna.
Unnur Ólafsdóttir móðir Kristjáns, og Unnur Sara dóttir hans veittu styrknum móttöku ásamt Ástu
Hallgrímsdóttur formanni Krafts og fulltrúum félagsins þeim Ágústu Ernu og Hildi Hilmarsdætrum,
en þær hafa allar stundað nám við MH.
Aðstandendur Minningarsjóðs Kristjáns Eldjárns gítarleikara og Krafts stuðningsfélags vilja koma á
framfæri þökkum til allra er komu að endurfundum MH-inga og veittu þennan styrk.