Læknablaðið - 01.12.1950, Page 9
LÆKNABLAÐIÐ
131
verkjum og vanlíðan, maga-
súrir og miður sín.
í kvöld ætla ég að gefa ykkur
stutt yfirlit yfir aðgeröir okk-
ar á maga- og skeifugarnarsár-
um hér í handlæknisdeild
Landspítalans frá því að hann
tók til starfa um jólin 1930.
Aðgerðir okkar á sprungn-
um sárum tek ég ekki með, það
er önnur saga. Og það, sem ég
ætla að taka sérstaklega til at-
hugunar, eru þær resectiones
ventriculi, sem við höfum gert.
Alls eru þetta 213 sjúklingar og
á þeim hafa verið gerðar 200
resectiones og 13 gastro-enter-
ostomiae.
Fyrstu árin voru g.-e. nær
því jafnmargar og resectionirn-
ar, en mér varð þá brátt ljóst
það, sem ég sagði hér áðan, að
resectionin væri róttækasta að-
gerðin við magasári, og að
henni bæri að stefna. Seinustu
14 árin höfum við aðeins gert
3 g.-e., þar af 1 seinustu 5 árin,
á gamalli konu á sjötugs aldri
með stenosis. Eftir þessar 13
g.-e. misstum við engan sjúkl-
ing.
Resectionirnar eru 200 og
eftir þær hafa 15 dáið. Dán-
artalan er því 7.5% og nokkuð
há, eftir því sem nú tíðkast.
En þá er því til að svara, að
þetta starf tekur yfir 20 ár og
það er fyrst á seinni árum, sem
dánartalan eftir resectionir við
ulcus hefir farið verulega lækk-
andi. Lengi fram eftir voru þeir
ulcus-sjúklingar, sem okkur
var trúað fyrir fremur fáir, og
ég skal ekkert um það segja,
hvort þeir hafa verið yfirleitt
lélegri en seinustu árin, vegna
þess að aðgerðin var þá, frem-
ur en nú, ultimum refugium,
það væri, út af fyrir sig vert að
athuga, ef hægt væri, en hefir
ekki verið reynt. Seinustu 5 ár-
in höfum við gert 107 resec-
tionir, án þess að missa nokk-
urn sjúkling. Sá seinasti, sem
dó eftir ulcus-resection, dó í
febrúarbyrjun 1946..
Einhverjir kynnu nú að ætla,
að hafi fyrri sjúklingarnir ver-
ið lélegir, þá væru þessir seinni
sérstaklega útvaldir. Það er þó
ekki. Yfirleitt höfum við tekið
þá magasjúklinga, sem að okk-
ur hafa verið réttir af lyflælcn-
isdeild Landspítalans og sér-
fræðingum í meltingarsjúk-
dómum, sem við getum þakkað
ágæta samvinnu. Líka mætti
e. t. v. segja, að þetta sé heppni.
Það er gott að hafa heppnina
með, en einhlít er hún ekki.
Áður en við snúum okkur að
því að athuga líklegar ástæður
fyrir því, að ulcus-resectionir
eru á seinustu árum orðnar
miklu áhættuminni en áður
tíðkaðist, er rétt að gera lítils-
háttar grein fyrir þessum 107
sjúklingum seinustu 5 áranna.
Ulcus ventriculi höfðu 54 en 53
ulcus duodeni. Magasárssjúkl-