Læknablaðið - 01.12.1950, Síða 11
LÆKNABLAÐIÐ
133
fyrr en á fimmtugs- og sumir
ekki fyrr en á sextugsaldri, sér-
staklega sjúklingarnir með
ulcus ventriculi. Ulcus duodeni
sjúklingarnir koma nokkuð
fyrr. Yngra fólkið kemur oft
vegna endurtekinna blæðinga
eða þá vegna þess, að það hef-
ir fengið perforatio og ekki
batnað, þótt gert hafi verið við
henni. Þeir eru ekki svo fáir,
sem svo hefir verið ástatt um
af þessum 107. Yngsti sjúkling-
ur okkar var aðeins 14 ára, með
stórt og slæmt ulcus duodeni,
sá elzti 61 árs, með ulcus ventri-
culi.
Þá er loks eftir að athuga
hvernig á því stendur, að maga-
resectionir vegna ulcus eru
orðnar miklu áhættuminni á
seinni árum og þá sérstaklega
hér hjá okkur, því að, eins og
ég sagði áðan, þá held ég, að
þetta sé ekki eingöngu heppni
að þakka. Flestir telja, að meg-
inástæðan sé aukin notkun
antibiotica og það er enginn
vafi á því, að henni eigum við
mikið að þakka. En þarna
kemur fleira til, sem sízt skyldi
vanmeta: betri undirbúningur
sjúklinganna undir aðgerðina,
betri eftirmeðferö og e. t. v.
betri operation. Ég skal nú, í
stuttu máli, skýra þetta nokk-
uru nánar.
Því er svo farið um marga og
kannske meginið af sjúklingum
okkar, að við verðum að taka
þá til aðgerðar strax og rann-
sókn er búin, og veldur þá oft,
að þörf er bráðrar aðgeröar og