Læknablaðið - 01.12.1950, Qupperneq 14
136
L Æ K N A B L A Ð 1Ð
ÓFRJÓSEMI KVEX-M
Cflir Pétur J4. P JUoL
'ion
Erindi flutt í L. R. 13. des. 1950.
Ófrjósemi eða minnkuð frjó-
semi er sennilega eins algengt
viðfangsefni á íslandi eins og
í öðrum nálægum löndum. Af-
leiðingar þessa fyrirbrigðis
eru oft sorglegar fyrir þau
sem við það þurfa að búa, auk
þess sem barnlausu hjónabönd-
in eru mjög erfið læknisfræði-
leg og félagsleg úrlausnarefni,
Það eru fáar konur, sem vilja
heldur lifa lífinu án afkom-
enda, og sama gildir karlmann-
inn. Rannsóknir á ófrjósemi
kvenmannsins eru nú á dögum
orðið verkefni, sem krefst mjög
mikillar sérþekkingar á tak-
mörkuðu sviði læknisfræðinn-
ar. Orsakanna er að leita á sviði
lífeðlisfræðinnar, líffærafræð-
innar og sjúkdómafræðinnar
hjá hvorum maka, sem standa
að barnlausu hjónabandi. Oft
getur þessi leit minnt á aðferð-
ir til þess að finna sökudólg-
inn í leynilögreglusögu; stund-
um er eins og karlmaðurinn
vilji forðast að láta koma upp
um sig, svo erfitt er að fá hann
til þess að láta af hendi sinn
hlut til rannsóknar. Stundum
eru það þó smávægilegar trufl-
anir, sem orsaka þessi mistök,
sem varða fólkið svo miklu, svo
það getur verið nægilegt að
samræma þannig samfarir að
þær fari fram á þeim tíma sem
egglosið er helzt væntanlegt
Það kemur líka fyrir, að í áhug-
anum á að afla sér afkvæmis
séu samfarir svo tíðar að sper-
matogenesis sé svo þraut-pínd.
að það séu engin tiltækileg
sperma þegar egglosið á sér
stað. Loks koma hjónaböndin,
sem árum saman hafa flúið
frjósemina með því að nota
varnarmeðul, en síðan þegar
ingunum og ekki látið dragast
að gera það, sem gera þarf.
Ég hefi ekki verið einn um
þessar aðgerðir. Ég hefi haft
mína ágætu aðstoðarlækna,
sem sjálfir hafa líka gert tölu-
vert af þessum aðgerðum,
kandidata og hjúkrunarkonur.
Segja má um þessar aðgerðir,
eins og margar eða flestar
spítalalækningar, að til þeirra
þarf „team-work“, samstillt
fólk í starfi og fyrir slíka sam-
stillingu vil ég þakka mínu að-
stoðarfólki.
Ekki hefir unnizt tími til þess
að athuga varanlegan árangur
þessara aðgerða. Það verður að
bíða betri tíma, en ég hefi það
á tilfinningunni að hann sé
sæmilega góður.