Læknablaðið - 01.12.1950, Blaðsíða 17
LÆKNaBLAÐIÐ
139
mannsins, og stjórnast af hor-
monum eggjakerfanna og koma
fram í breytingum á slímhúS
legsins, slími leghálsins og í
flöguþekju leggangsins. Um
þetta leyti fór mönnum að
verða það ljóst, hve mikið und-
irstöðuatriði starfsemi eggveg-
anna væri fyrir frjógunina,
því þeirra þarf með til þess
bæði að flytja sæðin og eggin.
Pyrsta aðferðin, sem fannst til
þess að athuga starfshæfni
eggveganna, var hysterosalpin-
gografi og stuttu síðar var far-
ið að gera uterotubal insuffla-
tion. Enn var eitt atriði, sem
smámsaman fengust sannanir
fyrir, en það var hið gamla lög-
mál „án egglosa, engar tíðir“.
Nú er það vitað, að tíðir eru
stundum reglulegar og eðlileg-
ar, án þess að nokkurt egglos
eigi sér stað; það eru hinar
svonefndu anovuleru blæðing-
ar.
Ýmsar eru þær aðferðir, sem
fundizt hafa til þess að ákveða
hvort egglos eigi sér stað, og
til þess að finna hvenær það
fer fram, en það getur ráðið úr~
slitum í þessum efnum,, Með því
að taka bita úr slímhúð leg-
ganganna, og skoða vefinn.
sjást breytingar, sem eru sér-
kennilegar fyrir egglosið, en
þetta kostar mikla fyrirhöfn og
er áverki fyrir konuna, og þess
vegna ekki hægt að endurtaka
eins og þyrfti í þessum tilfell-
um. Þeir Papanicolaou og Shorr
fundu upp á því að sjúga upp
1 glerrör slím úr leggöngunum,
blása á glerplötu, lita með sér-
stökum litum og skoða í smá-
sjá. Þetta er auðvelt fyrir kon-
una, en kostar töluverða æf-
ingu fyrir lækninn. Þeir, sem
hafa æfingu í þessu, geta sagt
til um egglos, nær því upp á
dag. Dr. Shorr hefir fundið upp
sérstaka litunaraðferð, sem tek-
ur ekki nema 2 til 3 mínútur og
smásjárskoðunin tekur álíka
tíma, Konurnar geta sjálfar
tekið slímið, sett á gler og „fix-
erað“ og síðan geta þær geyml
það og komið með það til lækn-
isins þó líði 1 til 2 vikur. Það
telja þær ekki eftir sér, þessar
konur, sem árum saman eru
búnar að ganga milli lækna, til
þess að fá bót á meini sínu. Þeg-
ar búið er að finna hvort egglos
eigi sér stað, þá þarf að finna
hvenær mestar líkur séu til þess
að getnaður geti farið fram.
Raunverulega er ekki hægt að
sjá egglosið, eða hvort egglos
hafi farið fram, nema með því
að gera holskurð, en slíkt dett-
ur engum í hug að gera í þeim
tilgangi, og síðan leita eggsins,
sem þá væri mesta tilviljun að
finna, með því að skola egg-
vegina. Þá væri líka búið að
eyðileggja það egg og þann
möguleika.
Önnur aðferð til þess að finna
hvenær og hvort egglos eigi sér
stað, er að athuga slímið í leg-
hálsinum. Hlutverk slímsins í