Læknablaðið - 01.12.1950, Page 23
LÆKNABLAÐIÐ
145
Æilenownu bronchiog enis.
(Erindi flutt í læknafélaginu Eir í apríl 1951).
Cftir ÓL P. JJjJtedecl dr.
me
d.
Bronchus adenom er sjúk-
dómsmynd, sem hefir verið
kunn all-lengi, en frekar fátt
hefir verið skrifað um, þar til
á síðustu 2 áratugum.
Talið er að Laennec hafi
fyrstur lýst æxlinu í byrjun 19.
aldar. Greindi hann frá 3 til-
fellum, sem fundizt höfðu við
krufningu. Rúmlega hálf öld
leið, án þess að frekar væri á
æxlið minnzt, en árið 1882 gat
þýzkur læknir, Mueller, þess,
að hann hefði fundið adenom
í bronchus við krufningu á
sjúklingi, sem dáið hafði af
öðrum orsökum. Virtist Mueller
hafa verið ókunnugt um grein
Laennec’s, enda taldi hann sig
hafa orðið fyrstan til þess að
benda á æxlið.
Upp frá þessu vaknaði áhugi
meinafræðinga og á næstu ára-
tugum birtust öðru hvoru
greinar, þar sem sagt er frá
einu eða fleiri tilfellum, sem
komið höfðu í ljós við krufn-
ingar. Var frekar litið á æxlið
sem ,,curiosum“, en að talið
væri að um sérstakan sjúkdóm
væri að ræða. Hélzt sú skoðun
mikið til óbreytt, þar til
bronchoskopi aðferðin varð
kunn, fyrir rösklega tveimur
áratugum. Má segja að fram til
þess tíma hafi þekking manna
á klinik sjúkdómsins verið lítil
sem engin. Bronchoskopi að-
ferðin gerði mönnum hins veg-
ar fært að greina æxlið með
fullri vissu í lifanda lífi og kom
þá í ljós, að æxlið er hvorki
eins sjaldgæft né ósaknæmt og
álitið hafði verið.
Árið 1930 safnaði Patterson
saman 26 sjúkrasögum, sem til
þess tíma höfðu birzt í tíma-
ritum. Meira en helmingur
þeirra, eða 16, höfðu bæzt við
eftir að farið var að nota
bronchoskop. Sama ár skrif-
aði Kramer um klinik sjúk-
telja það sannað, að jafnvel þó
morfologi, mobilitet og fjöldi
sæðanna sé eðlilegt, þá sé
stundum of lítið af hyaluroni-
dase eða það vantar alveg. Þetta
virðist því stundum geta verið
eina orsökin til þess, aö hjóna-
bandið er barnlaust. Áætlað er
að til þess að leysa upp follicul-
frumur eggsins þurfi hyalur-
onidase-magn 20 milljóna sper-
matozoa. Þetta efni er framleitt
úr eistum nauta og rotta, og
notað til rannsókna, en sem
meðal er það víst ennþá ekki
komið á markaðinn.