Læknablaðið - 01.12.1950, Síða 32
154
LÆKNABLAÐIÐ
lægir, hnöttóttir, með ríkulegu,
grófkornóttu chromatini.
Kjarnadeilingar sjást ekki.
Blæðingar sjást ekki í æxlis-
vefnum, að undanskildu svæð-
inu, sem skorið var úr áður.
Ekki sjást heldur bólgufrumur.
Æxlisvefurinn nær alls stað-
ar út í neðri rönd stilksins, þar
sem hann hefir verið skorinn
sundur. Histologisk diagnosis:
Adenoma bronchiogenis.
Fjórum mán. síðar, eða 24/2
’49, var aftur gerð bronchos-
kopi. Sáust þá lítilfjörlegar
trefjar, þar sem æxlið hafði
vaxið út úr slímhúðinni, og
voru þær fjarlægðar eftir beztu
getu. Histologisk diagnosis var
sú sama og áður. Sjúklingur-
inn var aftur rannsakaður 15/7
’49. Virtist slímhúðin þá eðlileg
og voru engar leifar af æxlinu
sjáanlegar. Síðan hefir verið
gerð bronchoskopi þrisvar sinn-
um, 1 janúar og maí 1950 og
loks 5/1 þ. á., án þess að fund-
izt hafi merki recidivs.
Líðan sjúklingsins hefir ver-
ið allt önnur eftir aðgerðina.
Undanfarin 2l/o ár hefir hún
aðeins kvefazt einu sinni og
lungað hefir jafnan virzt í
bezta lagi. Það skal látið ósagt,
hvort telja beri að stúlkan hafi
fengið fullan bata, en margt
bendir þó til þess, og a. m. k.
er lítil ástæða til að hafast frek-
ar að eins og sakir standa.
Hinn sjúklingurinn, sem
fundizt hefir, er 26 ára gömul
stúlka. Virðast fyrstu sjúk-
dómseinkenni hennar hafa
komið í ljós 1942, en fram að
þeim tíma hafði hún verið
heilsuhraust. í janúar það ár
veiktist hún skyndilega. Var
talið að hún væri með lungna-
bólgu h. m., enda lagaðist þetta
á hálfsmánaðartíma.
Tveimur mánuðum síðar var
tekin mynd af henni á Berkla-
varnastöðinni og kom þá í
ljós þykkni niður með hjarta-
rönd hægra megin og sam-
vextir basalt hægra megin, líkt
og um pleuritis leifar væri að
ræða. Pirquet próf reyndist
hins vegar neikvætt. Þremur
mánuðum síðar hóstaði sjúkl.
upp töluverðu blóði og var þá
flutt til Vífilsstaða, án vitund-
ar stöðvarinnar. Dvaldi hún
þar í mánaðartíma.en var síð-
an send heim, þar sem Man-
toux próf reyndist neikvætt.
Skömmu eftir heimkomuna
veiktist sjúkl. að nýju, fékk
háan hita og tak hægra
megin. Hóstaði hún skömmu
síðar töluverðu blóði og var þá
flutt á III. deild Landsspítal-
ans til frekari athugunar.
Dvaldi hún þar í 6 mánuði, án
þess að unnt væri að finna um
hvaða sjúkdóm væri að ræða.
Á röntgenmynd sáust svipaðar
breytingar og áður er getið um,
(sbr. mynd nr. 4). Var broncho-
grafi, sem gerð var þá, talin
eðlileg, en við frekari athugun
sést þó á myndinni að lipiodol