Bændablaðið - 24.04.2013, Síða 44

Bændablaðið - 24.04.2013, Síða 44
44 Bændablaðið | Miðvikudagur 24. apríl 2013 Utan úr heimi Þó svo að Færeyjar séu skammt suðaustan við Ísland eru þeir líklega margir hér á landi sem þekkja lítið til landbúnaðar hjá þessari frændþjóð okkar. Það sem meira er þá er þarlendur landbúnaður verulega háður íslenskum landbúnaði, enda er færeyskur landbúnaður ekki sjálfbær hvað snertir gróffóður og stærsti hluti innflutts gróffóðurs til Færeyja kemur einmitt frá íslenskum bændum. Almennt um Færeyjar Alls eru 18 stórar eyjar í Færeyjum, þar sem 17 eru í byggð, en auk þess eru margar smáeyjar og sker. Heildarlengd eyjaklasans er 113 km og heildarbreidd 75 km og heildarflatarmál eyjanna 1.399 km². Stærstar eru Straumey, Austurey, Vogar, Suðurey, Sandey, Borðey og Svíney. Á vetrum er töluvert hlýrra í Færeyjum en hér á landi en sumrin í báðum löndum eru áþekk hvað hitastig snertir. Hins vegar rignir mun meira í Færeyjum en á Íslandi, raunar svo mikið að það veldur töluverðum vandræðum í færeyskum landbúnaði þar sem tún þola illa umferð. Auk þess er víða mjög erfitt að endurrækta tún vegna úrkomu og einnig jarðvegsleysis, en afar stutt er niður á basalt í Færeyjum. Mikilvægasta atvinnugreinin er fiskveiðar og -vinnsla, en 97% útflutningstekna landsins koma úr þeim atvinnugeira. Landbúnaðurinn, sem skiptir Færeyjar verulegu máli, vegur þó ekki þungt þegar horft er til vergra þjóðartekna, en um 1% þeirra stafa frá landbúnaði. Þar bera nautgripa- og sauðfjárrækt af en lítillega er einnig framleitt af grænmeti. Stór hluti lands í eigu ríkisins Um helmingur alls lands sem notað er til landbúnaðar er í opinberri eigu og greiða bændur leigu fyrir það land. Sérstakur landbúnaðarsjóður sér um að rukka leiguna, sem og að selja land úr hinni opinberu eigu, og þær tekjur sem þannig skapast mynda grunn til útlána í færeyskum landbúnaði. Líkt og hér á landi er svo til almenningur þar sem fé gengur að sumarlagi og geta margir fjáreigendur nýtt sér það land. Stærri kúabú en hér á landi Í Færeyjum eru nú 28 starfandi kúabú með um 950 mjólkurkýr eða 34 kýr að jafnaði. Enginn mjólkurkvóti er í landinu en þess í stað eru í gildi framleiðslusamningar bændanna við afurðastöð landsins og þessir framleiðslusamningar gefa nú réttindi til framleiðslu á 7,5 milljón lítrum mjólkur. Meðalframleiðsla hvers bús er því um 268 þúsund lítrar, sem er töluvert meiri framleiðsla en meðalkúabús hér á landi. Í dag búa færeyskir kúabændur með mörg kúakyn í raun, en engar hömlur eru á sæðisnotkun í landinu. Flestir hafa þó einhvers konar blöndu af hinum norsku NRF-kúm og dönskum svartskjöldóttum kúm, en notkun þeirra síðarnefndu hefur farið vaxandi á liðnum árum enda afurðasemin töluvert meiri en hjá þeim norsku. Ekki sjálfbjarga með gróffóður Það sem vekur einna mesta athygli þegar mjólkurframleiðslan í Færeyjum er skoðuð er sú staðreynd að flytja þarf inn töluvert mikið magn þess gróffóðurs sem nautgripirnir éta og kemur þorri þess fóðurs frá íslenskum bændum en einnig er dálítið flutt inn af vélþurrkuðu grasi frá Danmörku. Annað fóður sem er gefið er frekar blautt vothey úr stæðum og rúllum, en hending er ef tekst að forþurrka með sama hætti og þekkist hér á landi. Tvö kúabú með mjaltaþjóna Rétt eins og var áður fyrr hér á landi hafa básafjós verið allsráðandi í Færeyjum en þau hopa nú jafnt og þétt fyrir legubásafjósum. Nú eru einnig komnir þrír mjaltaþjónar af DeLaval-gerð, þar af tveir í sama fjósið, og ber það því af í stærð meðal færeyskra fjósa. Flest kúabúin eru í einkarekstri en nokkur þó rekin sem félagsbú. MBM eina afurðastöðin Meginfelag Búnaðarmanna (MBM) er eina afurðastöðin í Færeyjum og er hún rekin með sama rekstarformi og Auðhumla hér á landi, þ.e. samvinnufélag kúabænda landsins. MBM framleiðir nánast allar mjólkurvörur sem kalla má ferskvöru, s.s. mjólk, jógúrt, súrmjólk, smjör og rjóma, en flestir ostar eru fluttir inn til landsins. Lítillega er þó Að áliti Alþjóða vatnsrannsókna- stofnunarinnar (IVF) býr fjórðungur jarðar búa á land- svæðum þar sem skortur er á hreinu vatni. Sjötti hluti þeirra, um einn milljarður manna, býr hins vegar þar sem nægur aðgangur er að hreinu vatni en of dýrt er að afla þess. Á stórum landsvæðum, einkum í Asíu og Norður-Afríku, er notkun vatns meiri en endurnýjun þess. Um 10% af kornuppskeru í heiminum koma af landsvæðum þar sem aðgangur að vatni er á undanhaldi, segir í grein í blaðinu Landsbygdens Folk. Næstum öll vatnakerfi heims eru orðin áhyggjuefni, þar af vekur um helmingur þeirra verulegar áhyggjur. Um 80% sjúkdóma í þróunarlöndum má rekja beint eða óbeint til skorts á hreinu vatni. Í Kína búa nú þegar um 300 milljónir manns við óhreint vatn. Sameinuðu þjóðirnar vara við því að ef veðurfarsbreytingar haldiáfram með óbreyttum hætti muni um helmingur jarðarbúa árið 2030 búa á landsvæðum með ótryggan aðgang að vatni. Síðustu hundrað árin þrefaldaðist fjöldi jarðarbúa en vatnsnotkun þeirra sexfaldaðist á sama tíma. Framkvæmdastjóri IVF, Frank Rijsberman, hefur vakið athygli á að vistkerfi jarðar, þróun samfélagsins og matvælaframleiðslan valdi ekki verkefni sínu án þess að gripið verði til ráðstafana. Bæði þróunarlönd og iðnríki jarðar hafa vissulega fjárfest í auknum aðgangi að vatni en þó ekki nægilega mikið. Í þróunarlöndunum hafa aðeins um 5-6% af fjárfestingum þessara landa farið í aukna öflun neysluvatns á sama tíma og hlutfallið hefði þurft að vera 50%. Þessi lönd hafa hins vegar ekki ráð á dýrum fjárfestingum og hafa snúið sér til einkageirans um aðstoð og samstarf. Nefna má að Bólivía framseldi vatnsréttindi í landinu til tveggja vestrænna einkafyrirtækja til 40 ára. Í kjölfarið hækkaði verð á vatni til neytenda um 200% og fátækir íbúar landsins neyddust til að greiða fimmtung tekna sinna fyrir neysluvatn. Í kjölfarið fylgdu hörð mótmæli og ríkisstjórnin neyddist til að ógilda samninginn. Hið sama gerðist í fleiri heimsálfum. Á hinn bóginn hafa mörg lönd, t.d. Finnland, leyst mál varðandi vatnsöflun sína í góðu samstarfi sveitarfélaga, svæðisbundinna félaga almennings og einstaklingsfyrirtækja en þá verða stjórn og öll fjármál að vera „uppi á borðinu“. Árið 2000 var gerð alþjóðleg „þúsaldamótasamþykkt“ um að árið 2015 hefði fækkað um helming fólki sem væri án hreins vatns. Sú samþykkt skilaði miklum árangri. Á hinn bóginn náðist ekki jafn mikill árangur með áætlun um að bæta salernisaðstöðu, sem er víða ábótavant. Árið 2015 mun því trúlega jafnstór hluti fólks og hingað til vera án klósetts, eða um 2,4 milljarðar manna. Hugmynd er uppi um að leggja megináherslu á þurrklósett, sem eru mun ódýrari en vatnsklósett. Matvælaframleiðsla tekur til sín um 70% af vatnsnotkun íbúa í þróunarlöndum, jafnvel 80-90%. Þar sem vatn fer um skurði en er ekki leitt í pípum tapast oft um helmingur þess. Vatnsnotkun heimila er afar breytileg. Þannig er hún um 100 lítrar á dag í Hollandi, Bretlandi og Úrúgvæ, en í Kanada og Nýja- Sjálandi er hún 700 lítrar á dag. Aðgangur þjóða að vatni segir ekki endilega til um efnahag þeirra. Dæmi eru um að fátæk lönd með takmarkaðan aðgang að vatni sjái íbúum sínum fyrir hreinu vatni til eldamennsku. Það eykur vonir manna um að vatnsöflun jarðarbúa standi til bóta. Er unnt að sjá öllum jarðar- búum fyrir hreinu vatni? Alþjóðasamtökin Avaaz – The World in Action hafa að undanförnu vakið athygli á ítrekaðri viðleitni bandaríska líftæknirisans Monsanto til að sölsa undir sig einkaleyfi á matjurtum af ýmsum toga. Þekkt er að Monsanto hefur orðið vel ágengt í að fá einkaleyfi á kornafbrigðum sem hafa þol gegn margs konar gróðureyðingarefnum sem Monsanto og dótturfélög þess hafa þróað. Það nýjasta í þessari sókn Monsanto er að sögn Avaaz að fyrirtækið reyni nú að nýta sér glufur í evrópsku lagaumhverfi til að sölsa undir sig einkarétti á margvíslegum ávöxtum og grænmetistegundum eins og gúrkum, brokkólí og melónum. Segja samtökin að búast megi við að ræktendur verði þá þvingaðir til að greiða Monsanto þóknun undir hótunum um að verða annars stefnt. „Við getum komið í veg fyrir að þeir kaupi upp móður jörð. Fyrirtæki eins og Monsanto hafa fundið göt í evrópskum lögum sem gera þeim kleift að komast upp með þetta. Við verðum bara að loka þessum götum áður en þessum fyrirtækjum tekst að skapa sér alþjóðlegt fordæmi. Til að ná þessu markmiði þurfum við að fá lönd eins og Þýskaland, Frakkland og Holland, þar sem mótspyrnan fer vaxandi, til að kalla eftir atkvæðagreiðslu til að stöðva áætlanir Monsanto. Avaaz hefur áður tekist að snúa ríkisstjórnum og okkur mun takast það aftur,“ segir í yfirlýsingu á vefsíðunni Avaaz.org. „Fjölmargir bændur og stjórnmálamenn eru þegar andsnúnir áformum þessara fyrirtækja. Það eina sem við þurfum að gera er að draga fram vald fólksins til að þvinga þessi ríki til að taka krumlur Monsanto af matvælunum okkar.“ Avaaz-samtökin voru stofnuð 2007, en nafnið merkir rödd á ýmsum evrópskum tungumálum. Þau eru með starfsemi í sex heimsálfum og starfa með liðsstyrk þúsunda sjálfboðaliða. Þau hafa beitt sér í ýmsum málum, m.a. gegn bankaleynd og greiðslu ofurbónusa í bankakerfinu. Fögnuðu samtökin því í febrúar sl. að Evrópusambandið hefði ákveðið að taka upp strangari löggjöf um vaxtagagnsæi og setja þak á bónusgreiðslur til bankamanna. Samtökin hafa líka barist gegn notkun á eiturefnum í landbúnaði sem hafa stórskaðað býflugnastofna í Evrópu. Í janúar hófu samtökin síðan harða baráttu á alnetinu gegn því að bandarísk yfirvöld samþykktu ræktun á erfðabreyttum laxi sem talinn er geta stórskaðað villta náttúrulega laxastofna. Nálgast má frekari upplýsingar um þessi samtök á vefsíðunni avaaz.org. Alþjóðasamtökin Avaaz: Snúast til varnar gegn einkaleyfis- baráttu Monsanto á matvælum Háðir heyi frá Íslandi! Avaaz óttast að líftæknirisar fái

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.