Læknablaðið - 01.08.1959, Blaðsíða 52
46
LÆKNABLAÐIÐ
Sjúklinginn þarf að skyggna
í ýrnsuin stellingum. Fyrst liggj-
andi á grúfu, á bakinu, í Tren-
delenburg, skástellingum eða á
lilið, j’inist með lítið eitt af
kontrastefni, hálffylltan eða vel
fylltan maga; og síðan reistan
upp til bálfs eða standandi. Loks
þarf að vera hægt að taka mynd-
ir um leið og skyggnt er, í hvaða
stellingum sem er, ýmist yfirlits-
myndir eða seríumyndir af þeim
ákveðna stað sem athugaverður
þykir.
Til þess að skyggningin komi
að gagni, taki sem stytztan tíma
og sjúklingurinn fái sem
minnsta röntgengeislun, þarf
sá, er liana framkvæmir að vera
þaulæfður, augun vel aðlöguð
og tæknilegur úthúnaður að vera
sem heztur. Erfiðast mun vera
að greina cancer í cardia og
fundus eftir resectio.
I fundus má oftast sjá æxli
hezt, þegar sjúld. stendur í
nokkurri skástellingu til vinstri.
Fundus er þá venjulega þaninn
lofti og æxlið sést e.t.v. skaga
inn í magann. Sé ekkert eða
mjög lítið loft í fundus, getur
það bent á að cardia sé óþétt,
e.t.v. vegna infiltrationar og in-
duratio. I Trendelenburgs ská-
stellingu til vinstri, má e.t.v.
greina tumorinn sem eyðu í
magaskugganum.
1 corpus og canalis koma fyll-
ingareyður oftast bezt fram í lít-
ið eða vel fylltum maga er legið
er á grúfu eða í skástellingu.
Þá má einnig gi’eina stífar út-
línur eða tröppumyndun („Stu-
fenhildung") eða sár með
þykkni i veggnum og stífu um-
liverfi.
Fellingar magans fást hezt
fram í lítið fylltum maga í
legu á grúfu (framveggur og
fundus) eða á haki (afturvegg-
ur og canalis). Þá má e.t.v.
greina, livernig fellingarnar
hafa eyðst eða horfið eða gliðn-
að vegna cancer-breytinga,
ödems eða atrofi.
Mynd I.
59 ára kona með ulcero-cancer
canalis ventriculi.
Sár í maganum eru oft mjög
erfið viðfangs. Nokkuð þykir
mega ráða af stærð þeirra, lög-
un, útlínum og dýpt, staðsetn-
ingu og umhverfi. Þau, sem
mældust 2 cm eða meira við
sáropið, þóttu lengi vel sérstak-