Læknablaðið - 01.08.1959, Blaðsíða 96
90
LÆKNABLAÐIÐ
gefur gjarnan óskýrari mynd,
vegna tvístrunar). Samt er
svæði neðanvert við lifrina í
sinkmyndinni, sem kemur ekki
fram á koparmyndinni. Það
mætti því ganga út frá því, að
þetta svæði svaraði til pancreas,
væri ekki sá ljóður á, að pan-
creas skilur út geislasinkið í
þarminn meðan á svæðaleitinni
stendur.
Þannig getur þessi aukna
dreifing geislaverkunar orsak-
azt bæði af geislun í pancreas
og geislun innan þarmanna. Að-
Ferðin virðist þó benda í rétta
att. Þess var jafnan gætt, þá
er tveir ísótópar voru notaðir,
að nógu langur tími liði á milli,
þar til seinni leitin var gerð, til
þess að fyrri ísótópinn hefði
hrörnað svo, að hans gætti ekki.
Leit var einnig gerð á
liundum, sem Eck fistill hafði
verið gerður á. Tilgangurinn
með þvi var að atliuga, hvort
hægt væri að fá pancreas skýr-
ar í ljós, ef lifrin væri minnk-
uð. Eck fistill felst í því, að
öllu portahlóði er veitt inn í al-
mennu blóðrásina, með því að
taka sundur v. portae þétt við
lifrina ogtengja hanaviðv. cava.
Portablóðið fer því fram hjá
lifrinni, og þegar aðgerðin er
framkvæmd með góðum ár-
angri, veldur hún allt að 50%
rýrnun á lifrinni á 6—8 vikum.
Myndir 3 og 4 sýna svæðam.
með Zn62 3 vikuin eflir Eck fist-
ils aðgerð og Cu64 4 vikum eftir
7. mynd.
8. mynd.
9. mynd.