Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.06.1960, Side 23

Læknablaðið - 01.06.1960, Side 23
LÆKNABLAÐIÐ 55 Iiii'liieiizan 1957 - Asíu- iníliienzan — og árangui* af bólusetningu Cftír: Júlíus Sigurjónsson, dr. med„ Björn Sigurðsson, dr. med.* og Halldór Grímsson, fil. mag. í flestum löndum Evrópu, og viðar, mun inflúenzu verða vart árlega, þannig að faraldur verði úr. En áraskipti eru að því, live víðtækir faraldrar eru og live Iiratt þeir fara yfir. Oft eru þeir hægfara og svo vægir, að erfitt er að greina frá kvefsótt, nema veirurannsókn komi til. En svo ber það við, að faraldur geysist á skömmum tíma um allar heimsálfur og er þá oft skæðari en annars gerist að jafnaði. Er talið, að 4—5 slikir heimsfar- aldrar (pandemiae) Iiafi gengið á 18. og 19. öld, hvorri fyrir sig, og einn á þessari öld fram til 1957, en það var faraldur- inn mikli og mannskæði 1918 — spánska veikin. Ónæmi eftir inflúenzu er, sem kunnugt er, stopult. Eftir að veirurannsóknir komu til sögu, hefur verið staðfestur grunur manna um, að það stafaði a. m. k. meðfram af hreyti- leika sóttkveikjunnar. En það var á árinu 1933, sem in- flúenzuveiran fannst í fyrsta sinn. — Nú eru aðgreindir tveir aðalflokkar af inflúenzu- veiru, A og B, og að auki flokk- arnir C og D, sem hafa þó ekki, svo að kunnugt sé, verið við- riðnir meiri liáttar faraldra. Þessa flokka má aðgreina með komplement-prófi. Innan aðalflokkanna tveggja — og þó einkum A, sem mun vera algengari, — hafa svo fund- izt fjölmörg afbrigði, hreytileg að antigengerð. Er svo að sjá sem við og við komi fram ný af- brigði, en eldri gerðir hverfi úr umferð. Mótefni gegn einu af- brigði geta veitt nokkra vörn gegn öðrum afbrigðum sama flokks, en svo þarf þó ekki að vera, og fer um það eftir því, hver munur er á antigengerð þeirra. Er þvi engin trygging fyrir því,að hóluefni,sem reynzt hefur vel í einum faraldri, gefi viðlilítandi raun í þeim næsta, * Handrit að grein þessari var ekki fullbúið, er dr. Björn Sigurðs- son féll frá.

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.