Læknablaðið - 01.09.1961, Blaðsíða 92
LÆKNABLAÐIÐ
Auglýsing
um sÍTrki iir JHinniitgarsjofti
llaraldis Quintiis flflosz
Ofangreindur sjóður er stofnaður af hollenzkum manni,
dr. J. E. Quintus Bosz, fyrrum ræðismanni íslands í Surabaya
í Indónesíu, í þeim tilgangi að styrkja hollenzka, danska og
íslenzka menn til rannsókna á sviði lífefnafræði, lyfjafræði
eða næringarefnafræði hitabeltislanda, og veita verðlaun
fyrir vísindalegan árangur í þessum fræðigreinum. Úthluta
má úr sjóðnum þremur styrkjum árlega hið mesta, er samtals
nemi 5.000 gyllinum, en það jafngildir nær 60.000 íslenzkum
krónum. Sjóðstjórn, sem skipuð er fjórum hollenzkum mönn-
um, ákveður, hverjir styrki skuli hljóta. Það er skilyrði fyrir
styrk til íslenzks umsækjanda, að hann hafi um eitthvert skeið
stundað nám við Háskóla íslands.
Umsóknir um styrk úr sjóði þessum skulu sendar mennta-
málaráðuneytinu fyrir 1. febrúar n.k. Umsókn fylgi upplýs-
ingar um náms- og starfsferil, staðfest afrit af prófskírteinum,
meðmæli háskólakennara, og ýtarleg greinargerð um rann-
sóknarstörf, sem umsækjandi kann að hafa unnið. Æskilegt
er, að umsóknir séu ritaðar á ensku.
26. september 1961.