Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.06.1965, Side 38

Læknablaðið - 01.06.1965, Side 38
12 LÆKNABLAÐIÐ 1 blaðið hafa skrifað 194 ís- lenzkir læknar, auk 29 erlendra lækna og 22 annarra. Auk nokk- urra þeirra, er í ritstjórn iiafa setið, ber einkum að nefna þessa lækna meðal þeirra, sem mest bafa skrifað í blaðið: Arna Árnason, Ólaf Ó. Lárusson, Sig- urð Magnússon, Sigurjón Jóns- son, sem auk þess tók saman vandaða efnisskrá fvrstu 30 ára, og Steingrím Matthíasson, sem oftar en nokkur annar skrifaði í blaðið, að Guðmundi Hannes- syni undanteknum. 1 ritstjórn blaðsins hafa setið þrír menn hverju sinni, en fimm frá síðustu áramótum. Frá og með 28. árg. hefur einn þeirra verið ráðinn aðalritstjóri, og liafa þessir læknar gegnt því starfi: Ólafur Geirsson 1942— 1954, Guðmundur Thoroddsen 1955—1956 og Ólafur Bjarna- son síðan 1957. Læknafélag Reykjavikur gaf eitl út Læknablaðið þar til 1955, er Læknafélag Islands gerðist meðútgefandi þess. Kýs hvort félag tvo mcnn í ritstjórn, en stjórnir beggja félaganna ráða aðalritstjóra. Fjárhagur blaðsins hefur löngum verið þröngur, en hef- ur batnað síðustu árin, og má nú heita allgóður, einkum sið- an ráðinn var sérstakur auglýs- ingastjóri 1960, en því starfi liefur gegnt Guðmundur Bene- diktsson. Fvrstu þrjú árin var blaðið prentað í Prentsmiðjunni Rún, en frá 1918 í Félagsprent- smiðjunni, sem einnig sá lengi um dreifingu lilaðsins. Vill rit- stjórnin nola þetta tækifæri til að þakka forráðamönnum og starfsmönnum prentsmiðjunn- ar ágætt samstarf. Siðustu árin hefur Jón Aðal- steinn Jónsson cand. mag. ver- ið ráðunautur blaðsins um ís- lenzkt mál. Hefur hann unnið mikið og vel fvrir blaðið, enda við ramman reip að draga, það er íslenzkt læknamál. Fullyrða má, að Læknablað- ið hefur gegnt mikilvægu hlut- verki fvrir islenzka læknastétt. Á 50 árum hafa birzt í blað- inu margar merkar og gagnleg- ar ritgerðir, en jafnframt bef- ur það lagt sinn skerf til efl- ingar félagsmálum lækna. A þessum timamótum munu því allir íslenzkir læknar minn- ast með þakklæti frumherjanna, sem komu blaðinu af stað og hlúðu að því á bernskuárum þess. Læknablaðið þakkar öllum velvildarmönnum sínum, sem lagt liafa því lið á umliðnum ár- um, með því að skrifa í það, eða á annan bátt.

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.