Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.04.1966, Side 25

Læknablaðið - 01.04.1966, Side 25
LÆKNABLAÐIÐ 51 ÓLAFUR SVEINSSON PRENTARI l\l IIMIMIIM G Hinn 19. febrúar sl. lézt í Landspítalanum Ólafur Sveins- son prentari, rúmlega 75 ára að aldri. Ólafur var sá maður, er lengst hafði starfað við Læknablaðið sem setjari þess. Er þess vegna tilhlýðilegt að minnast hans að leiðarlokum með fáum kveðju- orðum og þakka honum óvenju- gott starf í þágu blaðsins. Þegar ég hóf að vinna við Læknablaðið, hlaut brátt að koma að því, að ég kvnntist mönnum þeim, sem settu idaðið í prentsmiðjunni. Að vonum sneri ég mér fyrst til verkstjór- ans og ræddi við hann um hand- rit og prófarkir, og gekk svo um hríð. En þar kom, að ég stóð frammi fyrir þeim manni, sem setti blaðið og hafði gert um áratugi. Man ég vel, er það gerðist í fyrstasinni, enda hlaut slíkt að verða minnisstætt. ÓlafurSveinsson stóð upp, heilsaði og kynnti sig með nafni og lmeigði sig um leið að hofmannasið. Upp frá þessu leit ég ávallt til Olafs með sér- stakri virðingu og hylltist til að skipta við hann nokkrum orðum, þegar leið lá í prentsmiðjuna. Og aldrei brást það, að hann stóð upp frá setjaravélinni og heilsaði með handabandi, — og það handtak var bæði traust og hlýtt. Var ljóst, að hér var á ferð óvenjufágaður maður bæði til orðs og æðis. Aldrei liitti ég Ólaf svo á förnum vegi, að hann tæki ckki ofan, um leið og hann heils- aði, og gerði j)að með sérstökum glæsibrag. Var ógerlegt að sjá, að ]>ar færi maður á áttræðisaldri, enda var hann frár á fæti og snar í snúningum til hinztu stundar. Oþarft er að rekja hér æviferil Ólafs Sveinssonar nákvæm-

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.