Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.04.1966, Side 61

Læknablaðið - 01.04.1966, Side 61
I.ÆKNABLAÐIÐ 85 Verður nú gefið stutt yfirlit yfir einstaka flokka illkynja æxla, sem skráð voru hérlendis á árunum 1935—1960. Osteosarcoma Osteosarcoma (eða osteogen sarcoma) eru æxli, sem mynda hein sjálf, þ. e. æxlisbein (tumorbein) í stað ertnisbeins (reactiv lieins), sem getur myndazt umhverfis bæði illkynja og góðkynja beinaæxli. ' 4 Ekki eru meinafræðingar sammála um, bversu mikið af beini þurfi að myndast, til þess að æxlið geti kallazt „osteogen“. Sumir kalla öll æxli osteosarcoma, sem vottur af beini sést í, en aðrir vilja, að beinmyndandi æxlisvefur sé í meirihluta til þess að bljóta þetta nafn. Stundum sjást líka eyjar af brjóskvef eða bandvef, og mætti þá kalla æxlin chondrosarcoma eða fibrosarcoma. En flest æxli, sem vafi leikur á um nafngift, eru svo illa þroskuð (different- ieruð), að nafnið skiptir raunverulega litlu máli, þar sem þau vaxa öll hratt og mynda snemma meinvörp. Flest osteosarcoma gera vart við sig milli 10 og 20 ára aldurs og minnkar tíðnin síðan ört. Osteosarcoma í rosknu fólki á oftast upptök sín í beinum með Pagets sjúkdóm eða myndast eftir geisla- meðferð vegna annarra sjúkdóma. Sem dæmi má nefna osteosar- coma í nærenda upparmsleggs eftir röntgengeislun við krabba- meini í brjósti. Osteosarcoma er algengara i körlum en konum og á oftast upptök sín i metaphysis löngu útlimabeinanna. Meðferð osteosarcoma er róttæk skurðaðgerð, ef henni verð- ur við komið. Ef æxlið er í útlim, er aflimun nauðsynleg, en annars staðar er skorið burt eins mikið af heilbrigðum vef umbverfis og hægt er. Geislameðferð er notuð, þegar skurðaðgerð er ekki fram- kvæmanleg. Flest osteosarcoma eru lítið næm fyrir röntgengeisl- um, og er sú meðferð því hálfgert örþrifaráð. Horfur eru frekar slæmar, og af sjúklingunum frá Mayo Clinic lifðu 19% fimm ár eftir aðgerð og 15% lifðu 10 ár. 2 Osteosarcoma í rosknu fólki með Pagets sjúkdóm í beinum er mjög ískyggilegt, og deyja flestir sjúklinganna með meinvörp. Chondrosarcoma Chondrosarcoma nefnast æxli með yfirgnæfandi brjóskmynd- andi vef. Flest eiga upptök sín í mjaðmagrind, rifjum og nærend- um upparmsleggs og lærleggs. Þau eru algengari í körlum en kon- um og eru langoftast í uppkomnu eða eldra fólki. Til dæmis kem-

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.