Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.04.1966, Page 69

Læknablaðið - 01.04.1966, Page 69
LÆKNABLAÐIÐ 91 Fimmtudaginn 23. sept. voru fyrst flutt nokkur erindi um notkun gerviefna til að þekja stór brunasár og rætt um kosti þeirra og ókosti. Nokkur erindi voru einnig flutt um ýmsar aðferðir við meðferð stórra brunasára. Síðari hluta þessa dags var rætt um bruna-eiturefni og mótefna- myndun og um notkun blóðvökva (convalescent serum) við meðferð á slæmum brunasárum. Dagskrá föstudagsins 24. sept. fjallaði um skipulagningu bruna- deilda, og síðari hluta dags var haldinn almennur útbreiðslufundur til að kynna baráttuna gegn brunaslysum og starf það, sem unnið er vegna afleiðinga þeirra. Margt athyglisvert kom fram á þessu þingi í sambandi við með- ferð á bruna og brunasárum, en ekki þó neitt, sem talizt gæti til byltinga. Ástandið er þannig núna, að dánartölur við brunasár frá 10—50% hafa lækkað stórlega á síðustu áratugum, en hins vegar hafa heildardánartölur um brunasár yfir 50% af yfirborði líkamans ekki lækkað verulega. Sú breyting hefur þó orðið á, að með nútíma- meðferð á losti deyja fæstir sjúklingar úr því, þ. e. a. s. á fyrstu 48 klst. Algengustu dánarorsakir við brunasár yfir 50% eru því nú blóð- eitrun (sepsis) og þá aðallega af pseudomonas pyocyanea og hins vegar lungnaskemmdir og afleiðingar þeirra. Ekki virðast miklar líkur til, að breytingar verði á þessu, fyrr en hægt er að flytja húð frá einum einstaklingi til annars og láta þá húðþekju verða varanlega. Annað, sem þarna kom fram, var að vísu ljóst áður, en það er, að bruna- slys eru fylgifiskar fátæktar og fáfræði og þeim fækkar í réttu hlut- falli við betri lífskjör og uppfræðslu. Þinghaldið var allt ágætlega skipulagt af hálfu Skotanna, og á hverju kvöldi var fulltrúum boðið til móttöku hjá einhverjum opin- berum aðilum, m. a. borgarstjórninni í Edinborg, Edinborgarhá- skóla o. fl. Eins og áður er sagt, hefur ekki verið til nein stofnun eða ákveð- inn félagsskapur, sem fæst eingöngu við rannsóknir á bruna og bruna- meðferð. En á þingi þessu var stofnað alþjóðafélag um brunasár, Inter- national Society for Burn Injuries. Kjörin var undirbúningsnefnd, og lagði hún fram frumdrög að lögum félagsins. Jafnframt var þingfull- trúum gefinn kostur á að gerast stofnfélagar með því að greiða eitt sterlingspund í stofnsjóð. Undirbúningsnefndin lagði fram frumdrög að lögum félagsins, og er hér aðeins drepið á það, sem varðar markmið þess: 1. að dreifa þekkingu og stuðla að brunavörnum; 2. að stuðla að og samræma rannsóknir á bruna; vísindalegar, klín- iskar og þjóðfélagslegar; 3. að stuðla að menntun um alla brunameðferð, þ. á m. fyrstu hjálp og hjúkrun; 4. að örva til bættrar meðferðar í öllum löndum og gera virka hjálp tiltæka, þar sem þörf er á, með þeim aðferðum, sem mögulegar eru; 5. að stuðla að vinsamlegri samvinnu í öllum löndum með því að miðla og dreifa upplýsingum: með heimsóknum, erindum, styrkj- um, fundum, samlestrum, sýningum o. s. frv.

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.