Læknablaðið - 01.04.1966, Síða 73
LÆKNABLAÐIÐ
95
Nýtt, norrænt tímarit
Universitetsforlaget í Oslo hefur nýlega tilkynnt, að það
muni innan skamms hefja útgáfu nýs tímarits, SCANDINA-
VIAN JOURNAL OF GASTROENTEROLOGY.
Aðalritstjórn skipa J. A. Myren, Oslo, B. Ihre, Stokkhólmi,
K. H. Köster, Kaupmannahöfn og M. Siurala, Helsinki.
Auk aðalritstjórnar verður tólf manna ritnefnd frá jafn-
mörgum löndum. Fulltrúi Isands í ritnefnd er Tómas A.
Jónasson.
Greinar, sem óskað er eftir að birtist í Scandinavian Journal
of Gastroenterology, skulu sendar Tómasi Á. Jónassyni Iækni,
Hvassaleiti 83, Reykjavík, eða aðalritstjóra, Dr. med. J. A.
Myren, Ullevál Sykehus, Oslo.
Læknafélag íslands
Stjórn Læknafélags Islands yill vekja athygli lesenda
Læknablaðsins á tímaritinu
WORLD MEDICAL JOURNAL.
Með þessu hefti Læknablaðsins eru áskrifendum send
työ kynningareintök af þessu tímariti, sem gefið er út
al' World Medical Association. Jafnframt fylgir áskriftar-
seðill, sem endursenda má til skrifstofu Læknafélags Is-
iands, Domus Medica, Reykjavík.
Askriftárgjald er ekki enn ákveðið, en verður mjög
lágt, væntanlega um 50 íslenzkar krónur árgangurinn.
Stjórn L. I.