Læknablaðið - 01.06.1966, Blaðsíða 26
102
LÆKNABLAÐIÐ
stjóra Björnssonar, og konu hans, Snjólaugar Sigurjónsdóttur
frá Laxamýri. Eignuðust þau tvær dætur, Snjólaugu tannlækni,
gifta Kjartani Magnússyni lækni hér í horg, og Guðríði hjúkr-
unarkonu.
Sveinn læknir var meðalmaður á hæð, þéttur á velli og þétt
ur í lund, sviphreinn og fagurevgður, kátur, skemmtilegur og
fyndinn í daglegri umgengni og i góðra vina hópi hrókur alls
fagnaðar og hélt því að vera glaður og reifur til síðustu stundar.
Hann var ástsæll af sjúklingum sínum, svo að af bar, og
starfið var stundað af góðvild, ljúfmennsku og nærgætni, enda
söfnuðust til iians margir þeirra sjúklinga, sem á einhvern hált
höfðu orðið undir i lífsbaráttunni, og héldu þeir tryggð við sinn
lækni, þó að liann væri langdvölum frá starl'i síðari árin sökum
veikinda.
Sveinn var mjög samvinnuþýður maður. Unnum við hvor
fyrir annan í rúm 30 ár, hæði meðan á augnlækningaferðalögum
okkar stóð og i leyfum frá störfum.
Eins og svo margir nútímamenn veiktist Sveinn af hjarta-
sjúkdómi, sem skyndilega dró hann til dauða.
Með Sveini Péturssyni er horfinn úr okkar stétt góður dreng-
ur, sem sárt er saknað af þeim, sem þekktu hann hezt.
Kr. Sveinsson.