Læknablaðið - 01.08.1966, Blaðsíða 44
162
LÆKNABLAÐIÐ
STÖRF NEFNDA
Vottorða- Nefndina skipuðu Bjarni Konráðsson, Guðmundur Bene-
nefnd. diktsson og Haukur Kristjánsson.
Nefndin endurskoðaði vottorðataxtann í XIII. kafla Gjald-
skrár L. R. Var taxtinn hækkaður í samræmi við aðrar hækkanir á
töxtum, sem orðið hafa á tímabilinu frá útkomu síðustu gjaldskrár.
Nokkrum nýjum atriðum var bætt í taxtann og önnur hafa verið
endurmetin ýmist til hækkunar eða lækkunar í samráði við formann
taxtanefndar og skv. ósk kollega, er þessi atriði hafa sérstaklega varðað.
Launa- Nefndina skipuðu sömu menn og árið áður, þ. e. Víkingur H.
nefnd. Arnórsson formaður, Sigmundur Magnússon og Jakob V.
Jónasson.
Mjög mikil störf hafa hvílt á herðum þessarar nefndar á árinu, og
skal hér getið hins helzta úr greinargerð nefndarinnar frá síðasta aðal-
fundi.
I. Mánuðina apríl—júní starfaði nefndin að undirbúningi tillagna
um laun til handa læknum, starfandi hjá ríkinu, þar sem kjarasamn-
ingum opinberra starfsmanna hafði verið sagt upp og engar horfur voru
á, að samningar tækjust, en málið myndi fara til Kjarad.óms.
Við samningu þessara tillagna var höfð hliðsjón af lágmarkslífeyri
þriggja barna fjölskyldu miðað við útreikninga 1953.
Haldnir voru nokkrir fundir með fastlaunalæknum, svo og stjórn
Læknafélags íslands, og varð að samkomulagi að gera eftirfarandi
kröfur um mánaðarlaun:
a) Landlæknir kr. 50.000.00
b) Yfirlæknir kr. 45.000.00
c) Aðstoðaryfirlæknir kr. 40.500.00
d) Deildarlæknir kr. 38.000.00
e) I. aðstoðarlæknir kr. 32.600.00
f) II. aðstoðarlæknir kr. 27.800.00
g) Kandídatar kr. 24.000.00
Aðeins tveir eða þrír efstu flokkarnir náðu lágmarkslaunum til að
framfleyta þriggja barna fjölskyldu og standa straum af áðurnefndum
kostnaðarliðum. Læknar í neðri iaunaflokkunum höfðu orðið að ná
þessum lágmarkslaunum með yfirvinnu, og sést af því, að launakröfun-
um var í hóf stillt. í dómsúrskurði sínum 1963 þótti læknum Kjaradóm-
ur ekki taka nægjanlegt tillit til menntunar og sérhæfni starfsmanna
og ábyrgðar við skipun lækna í launaflokka, eins og honum er þó skylt
að gera, sbr. 20. gr. laga nr. 55/1962.
Þar sem læknum er ljóst, að þeir eiga ekki vegnaeðlisogfyrirkomu-
lags starfs þeirra heima í launaflokkum með öðrum opinberum starfs-
mönnum, var í þessari kröfugerð farið fram á, að samið væri sérstak-
lega fyrir lækna, óháð núverandi launaflokkum. Þessar tillögur ásamt
greinargerð sendi svo Læknafélag íslands til Kjararáðs BSRB, en lög-
um samkvæmt semur BSRB fyrir alla opinbera starfsmenn. Afrit af
þessari kröfugerð var sent til samninganefndar ríkisstjórnarinnar.
Eins og síðar kom á daginn, sinntu hvorki BSRB eða samninga-