Læknablaðið - 01.08.1966, Blaðsíða 59
LÆKNABLAÐIÐ
173
kaupstöðum, svo og víðs vegar á landinu, og er eðlilegt, að læknasam-
tökin eigi forgöngu þar um.
Loka- í ársskýrslu félagsstjórnar að þessu sinni eru eins og und-
orð. anfarin ár rakin flest þau málefni, sem meiri háttar mega
teljast úr störfum félagsins. Hins vegar geyma fundargerð-
arbækur stjórnar og meðstjórnar, nefnda og félagsfunda mörg fleiri
mál, sem hér yrði of langt upp að telja. Stjórnarstörf, eins og þau hafa
verið í félagi þessu undanfarin ár, eru orðin mjög viðamikil og ekki
hægt að rækja þau, svo að vel sé, fyrir menn í fullu starfi annars stað-
ar. Væntanlega verður veruleg breyting á starfstilhögun félagsins með
ráðningu framkvæmdastjóra með fullan starfstíma í okkar þágu. Skap-
ar það miklu meiri festu í félagsstarfið, þar sem hann mun fylgjast með
störfum hinna mörgu nefnda félagsins, svo og stjórnar og meðstjórnar,
og annast framkvæmd margra þeirra starfa, sem hingað til hafa hvílt
á stjórninni.
Um leið og ég flyt hinni nýju stjórn og þeim, sem nýir verða kjörn-
ir í meðstjórn, beztu árnaðaróskir í starfi frá fráfarandi stjórn, vil ég
að lokum þakka starfsfóiki og nefndum, meðstjórn og síðast, en ekki
sízt, samstjórnarmönnum mínum fyrir samstarfið á síðustu tveim árum.
TILKYNNING
Ákveðið hefur verið, að lyfjafyrirtækið MERCK SHARP
& DOHME, NEDERLAND N.V., Haarlem, Hollandi, bjóði
íslenzkum læknum til
SYMPOSIUM UM LYFIÐ INDOMETHACIN.
Ráðstefnan verður haldin í DOMUS MEDICA laugardag-
inn 24. sept. n. k. og hefst kl. 14.00 e. h.
Fyrirlesarar verða:
1. Dr. F. Dudley Hart, Westminster Hospital, London.
2. Prof. Dr. E Káss, Oslo Sanitetsforenings Reumatisme-
sykehus.
3. Dr. med. I. Rossel, Fysiurgisk Hospital, Hornbæk.
Að fyrirlestrunum Ioknum verða frjálsar umræður og
spurningum svarað. Því næst býður fyrirtækið læknum
hressingu í Domus Medica (kl. 5—8).