Læknablaðið - 01.10.1966, Síða 63
L Æ K N A B L A Ð I Ð
225
lækni, seni hefur tvær til sex lieilbrigðisnefndir í læknishéraðinu,
að halda uppi sæmilegum heilbrigðisháttum, semja heilbrigðissam-
þykktir og endurskoða þær með hæfilegu millibilí, svo að þær úr-
eldist ekki, svo scm skylt er lögum samkvæmt.
Nákvæm lagaákvæði eru um það, hverjir séu í heilbrigðis-
nefiiíi. í kaupstöðum skulu lögreglustjóri og héraðslæknir vera
sjálfkjörnir í heilbrigðisnefndir og lögreglustjóri vera formaður.
Þar sem lögreglustjóri er ekki búsettur í umdæmi heilbrigðisnefnd-
ar, kemur hreppstjóri í hans stað. Að lögreglustjóri sé formaður
heilhrigðisnefnda, hefur verið í lögum um heilbrigðissamþykktir
frá árinu 1901, er þau voru fyrst samþykkt. Er ])að sjálfsagt fvrir
dönsk áhrif, cn lögreglustjórum var með dönskum lögum frá 1858
falið að sjá um, að heilbrigðissamþykktum væri framfylgt, enda
er heilbrigðiseftirlit þar í landi aðallega í höndum lögreglu. Stjórn
heilbrigðiseftirlils í Noregi og Svíþjóð er hins vegar í höndum hér-
aðslækna, enda hafa lögreglustjórar ekki veriðí heilbrigðisnefndum
i Noregi, a. m. k. ekki síðan 1860 n og Svíþjóð ekki síðan 1919.10
Þessar þjóðir eru allar sjálfum sér samkvæmar í þessu tilliti. Hér
á landi er allt heilbrigðiseftirlit í höndum héraðslæknis (í Reykja-
vík borgarlæknis) eða heilbrigðisfulltrúa undir hans stjórn,
Hlutverk lögreglu í slarfi sænskra heilbrigðisnefnda er nú
mjög lítið. Lögregla þarf ekki að koma heilbrigðisnefndum til
hjálpar, nema um sé að ræða venjulegar lögregluaðgerðir, t. <i. ef
starfsmenn heilbrigðiseftirlits eru hindraðir með valdi í störfum
sínum. Léttir þetta starfi af lögreglu, auk þess sem sá sálfræðilegi
kostur fylgir þessu skipulagi, að samband og samvinna heilbrigðis-
eftirlitsins við almenning verður betri, og auðveldar ]>að úrlausn
mála.11 Nú mun standa fyrir dyrum endurskoðun á dönskum lög-
um um heilhrigðiseftirlit, enda hefur skipulag þess verið gagn-
rýnt.12
Það má benda á, að nokkurt ósamræmi er í því að setja héraðs-
lækna til að annast um heilbrigðismál í héruðum sínum, eins og
nánar verður að vikið síðar; fá sveitarfélögum í hendur það hlut-
verk að annast um hreinlætis- og heilhrigðismál sín 12 og takmarka
jafnframt sjálfstjórn heggja þessara aðila með ])ví að setja sýslu-
menn og bæjarfógeta til formennsku í heilbrigðisncfndum.
Heilbrigðisnefndir i kaupstöðum skulu skipaðar ])rem eða
fimm mönnum, en í hreppum skulu nefndarmenn vera þrír. Sem
fyrr segir eru lögreglustjórar sjálfkjörnir formenn, eða hreppstjór-
ar í ])eirra stað. Héraðslæknar eru einnig sjálfkjörnir i heilbrigðis-
nefnd, ef ])eir eru húsettir í umdæmi nefndarinnar, og jafnan er