Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.08.1969, Page 51

Læknablaðið - 01.08.1969, Page 51
LÆKNABLAÐIÐ 133 1. mynd Myndir af nokkrum leglægum getnaðarvörnum úr plasti og næloni. 1. Lippes-lykkja. 2. Ota-hringur. 3. Margulies spiral, líka kallað GYNEKOIL. 4. Nælon-hringurinn, hespa úr nylonþræði. 5. Birnberg-bogi. 6. SAF — T — COIL. ar sammála um að láta ekki hluti upp í leg, nema konan sé bú- in að eiga tvo til þrjú börn. Meiri háttar slys koma fyrir, þó að þau séu sjaldgæí', og er engin tegund þessara hluta, sem sett eru inn í leghol, örugg. Þegar reynd er I.U.D.-aðferð í tugþúsundum og hundruðþúsund- um tilfella, þá verður vart slíkra slysa. Undanfarin ár hefur svo mikið verið ritað um I.U.D., og lög- un hinna ýmsu hluta er svo margbreytileg, að þess verður ekki nánar getið hér. En augljóst er, að það getur orðið konunni lífs- bættulegt, ef hluturinn herst gegnum legið og inn í grindarhol hennar og þar með eftir ástæðum upp um allt kviðarholið. Læknablöð hafa birt ýmsar greinar um alvarlega sjúkdóma og dauðatilfelli af völdum leglægra getnaðarvarna. Ameríska læknablaðið „Obstetric and Gyneclogjf“ birti 1968 grein eftir Scott, og segir hann frá rannsókn, sem hann framkvæmdi með

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.