Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.04.1971, Blaðsíða 37

Læknablaðið - 01.04.1971, Blaðsíða 37
LÆKNABLAÐIÐ 45 um aldrei. Aðeins víðtækar krufningar gæti gefið hugmvnd um, hve margir Islendingar séu raunverulega sýktir.7 Síðar hafa ýmsir læknar ritað um sullaveiki, og töldu þeir ágizkanir þær, sem hér eru greindar, vera fjarri lagi, allt of háar. Þessir læknar, Jón Finsen,3 Jónas Jónassen5 og Guðmundur Magnússon-, reistu skoðanir sínar á fjölda þeirra sjúklinga, sem þeirra höfðu vitjað eða þeir liaft spurnir af. Árið 1912 taldi Guð- mundur Magnússon, að utan kaupstaða væri einn af hverjum 240 haldinn snllaveiki, sem sjúkleg einkenni fylgdu. Þegar regluhundnar krufningar voru teknar upp hér á landi á Rannsóknastofu Háskólans upp úr 1930, skapaðist aðstaða til að fá úr því skorið, hve margt af því fólki, sem fætt var á síðari hluta nítjándu aldar, hefði orðið fyrir smiti af sullum. Niðurstöður af þessum krufningum hefur Níels Dungal dregið saman (III. tafla).12 A árunum 1932-1956 voru krufðir 2272 manns. Kemur í ljós, að 22% af fólki, sem fætt var á árunum 1861-1870, var með sulli og 15% af fólki, sem fætt var árin 1871-1880, reyndist hafa sulli, en hins vegar aðeins 3% af þeim, sem fæddir voru 1881-1890, og í fólki, sem fæddist eftir 1890 fundust mjög sjaldan sullir. Níels Dungal dregur þá ályktun al' þessum niðurstöðum, að fjórði eða fimmti hver maður, scm fæddur var 1860-1870 eða fyrr, liafi verið haldinn sullum. Ágizkanir J. Thorstensens og P. A. Schleisners hafa því e. t. v. ekki verið of háar. Ekki eru til neinar áreiðanlegar tölur um fjölda hunda á Islandi á síðari hluta 19. aldar, en fjöldi þeirra skipti miklu fyrir viðgang sullaveiki. Jón Hjaltalín áætlar, að árið 1862 hafi hundar á Islandi verið nálægt 20.000. Tveimur árum síðar telur Harald Krahbc, að þeir muni vera 15-20.000, og hefur þá fundið, að 28% þeirra voru sýktir af ígulhandormum og niður af hverjum þeirra gengi þúsundir tæniaeggja daglega. Til samanburðar má geta þess, að þá voru íbúar á Islandi taldir um 70.000. Næst er fjöldi lmnda áætlaður sex árum síðar af nefnd þeirri á Alþingi, er undirbjó fyrstu lagaákvæði um sullaveikivarnir. Er gizkað á, að hundar hér á landi liafi árið 1869 ekki verið fleiri en 24.000, en ekki heldur miklu færri. Arið 1869 var gefin út tilskipun um liundahald á Islandi. Er það fyrsta opinhcra ráðstöfunin til að hefta útbreiðslu sullaveiki. Skyldu taldir fram allir liundar og óþarfa hundar skattlag'ðir og menn skyldaðir til að eyða sullum og sollnum slátrum. Síðar hefur menn greint nokkuð á um það, að hve miklu leyti
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.