Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.08.1971, Page 13

Læknablaðið - 01.08.1971, Page 13
LÆKNABLAÐIÐ 119 Víðtæk þekking hans og áhugi á félagsmálum og öllu því, sem horfði til framfara og velfarnaðar, fór ekki lengi fram hjá for- ráðamönnum Hafnarfjarðar. Þeir sóttu því snemma fast að hon- um að taka virkan þátt í framkvæmdamálum bæjarins, og ekki létu þeir sér nægja, að hann væri fulltrúi þeirra í hæjarstjórn í 18 ár, ásamt öðrum störfum, sem liann sinnti i þágu Hafnar- fjarðar, heldur var skorað á hann, þangað til hann lét til leiðast, að bjóða sig' fram til Alþingis, og kosningasigrar hans báru órækt vitni þess, hvílíkri hylli hann átti að fagna meðal Hafnfirðinga. Störf Bjarna sem þingmanns og bæjarfulltrúa urðu Hafnfirð- ingum heilladrjúg, enda þótti hann jafnan halda vel á hlut þeirra, bæði í bæjarstjórn og á Alþingi. Hann sótti mál sín af festu og síillingu, var þekktur fyrir að láta sannlæringu ráða gerðum sínum, þó að liún væri ekki alltaf samkvæmt flokkslínum. Þótt Bjarni hætti Jnngmennsku árið 1942, var J)að síður en svo vegna fylgisleysis. Ákvörðun hans að meta læknisstörfin meira en stjórn- málin var bjargföst, og' áskoranir flokkssíjórnarinnar og kjós- enda fengu þar engu um |)okað. Hann lét aftur á móti til leiðast að vera enn um skeið í miðstjórn Sjálfstæðisflokksins, eins og' minnzt var á áður. Þegar Krabbameinsfélag Islands var stofnað 1951, var Bjarni kosinn í stjórn þess, og þar lágu leiðir okkar saman um margra ára skeið. Hann sinnti félagsstörfum þar af þeirri einlægni og alúð, sem honum var í blóö borin. Hann var ekki margmáll á fundum, en traustur og tillögugóður. Þess vegna var hans mikið saknað, þegar hann baðst eindregið undan endurkosningu 1968. Þeir eru J)ó nokkuð margir sjúklingarnir, sem Bjarni vísaði til mín sem sérfræðings á undanförnum áratugum. Ég komst því ekki Iijá að veita því sérstaka athygli, live hlýlega andaði frá þeim í garð lians og hvílíkar mætur J)eir höfðu á honum. Þing- skörungurinn Jón Pálmason sag'ði eitt sinn um þennan sam- Iierja sinn það, sem flestir vildu sennilega taka undir, scm þekktu Iiann: „Bjarni er einn af þeim fáu mönnum, sem aldrei fellui skuggi á við náin kynni og sem maður treystir því betur, sem kynnin verða lengri og nánari.“ Bjarni var mikill gæfumaður bæði í starfi og einkalífi. Árið 1921 kvæntist hann Helgu Jónasdóttur, útgerðarmanns frá Hníls- dal, Þórðarsonar. Þar eignaðist hann konu, sem var honum jafnan hollur og frábærlega góður förunautur. Finnn börn þeirra eru öll fvrirmyndarfólk, og einn sona hans, Jónas, fetar í fótspor föður síns scin athafnamikill og' dáður læknir.

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.