Læknablaðið - 01.08.1971, Page 24
130
LÆKNABLAÐIÐ
koma skipulagi á þessi mál, skapa reglur, sem allar þjóöir geti
aöhvllzl framvegis. Aöild að þessum málum eíga einkum WHO
og FIGO (The International Federation oí' Ohstetries and Gyne-
cology).
Samkvæmt tillögum þessara aðila skulu skilin milli fóstur-
láts og barns miðast við fæðingarþyngdina 500 g, hvort held-
ur um er að ræða lifandi eða lífvana (andvana) fæðingar.
Tölur um perinatal mortalitet skulu ná yfir andvana fædd börn,
sem vega meira en 1000 g við fæðingu og lifandi fædd börn,
sem vega meira en 1000 g og látast innan sjö daga frá fæð-
ingu.
Njóti ofangreindar tillögur aiþjóðasamþykkis, er sjálfsagt að
gera gangskör að því, að íslenzkri ljósmæðrareglugerð verði
breytt til samræmis við þær.
Úrdráttur
Kannaðar hafa verið dánartölur nýfæddra barna (perinatai
mortalitet) í Reykjavík 1961—1970.
Fæðingar á þessu tímabili reyndust alls 23245. Tvíburafæðing-
ar voru 263 og þríburafæðingar sex. Heildarfjöldi nýfæddra
barna var því 23520, eða um það bil helmingur allra nýfæddra
barna i landinu á þessu tímabili.
Ofangreindu tímabili var skipt í tvö fimm ára tímabil. Peri-
nalal mortalitet 1961 1965 var 22.7/1000 og 1966 — 1970
20.8/1000. Lækkunin á dánartölunum er einkum fólgin í fækk-
un andvana fæðinga.
Perinatal mortalitet í Reykjavík virðist vera sambærilegt við
s amsvarandi tölur hjá öðrum Norðurlandaþjóðum.
Perinatal mortality in Reykjavík 1961 — 1970
Summary
Perinatal mortality in Reykjavík during the years 1961 — 1970 has
been reviewed.
The total number of newborns during this period was 23520. Table
1 shows the number of deliveries in five different maternity institu-
tions, also the number of homedeliveries (442). Furthermore the table
indicates the number of twins and triplets.
The total number of children born in Reykjavík during this decade
comprises approximately half of the total newbornpopulation in Ice-
land during the period concerned (table 2).