Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.08.1971, Side 29

Læknablaðið - 01.08.1971, Side 29
LÆKNABLAÐIÐ 135 f. Væntanlegar útskriftir sjúklinga. g. Væntanlegar innritanir sjúklinga. 4. gr. Um verkskiptingu lækna í sjúkrahúsinu og skiptingu sjúklinga milli lækna fer eftir samkomulagi þeirra, og/eða reglum, er sjúkra- hússtjórn setur, að fengnum tillögum samstarfsnefndar. Innritun bráðra sjúkdómstilfella og fyrstu meðferðar annast vakthafandi læknir og gerir sjúkraskýrslu. Innritun sjúklinga af biðlista skal, sé þess kostur, ákveðinn með nokkrum fyrirvara og hvaða læknir skuli annast hann öðrum fremur. Stefnt sé að því, að þau hlutföll, sem samkomulag næst um, varðandi starfssvið og skiptingu sjúklinga milli lækna, raskist sem minnst, a. m. k. ekki um lengri tíma. Utskrift sjúklings og ritun læknabréfs annast sá læknir, sem aðal- lega hefur stundað sjúklinginn. Yfirlæknir mælir yfirleitt fyrir um allar meiri háttar aðgerðir. 5. gr. Stofugang að morgni annast læknar saman og kynnast meðferð sjúklinga hvers annars. Kvöldstofugang annast vakthafandi læknir. 6. gr. Læknar sjúkrahússins gegna störfum yfirlæknis í fjarveru hans skv. ákvörðun sjúkrahússtjórnar, að fengnum tillögum samstarfs- nefndar. 7. gr. Reglugerð þessi kemur til framkvæmda strax, að því leyti, sem aðstæður leyfa að mati sjúkrahússtjórnar, en að öllu leyti eigi síðar en 1. apríl 1970. Reglugerð þessi, sem samin er og samþykkt af stjórn Sjúkrahúss- ins í Húsavík, staðfestist hér með samkv. 3. mgr. sjúkrahúsalaga nr. 54/1964 til þess að öðlast gildi þegar í stað og birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli. i Dóms- og kirkjumálaráðuneytið 11. apríl 1969. Jóhann Hafstein Jón Thors

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.