Læknablaðið - 01.08.1971, Blaðsíða 30
136
LÆKNABLAÐIÐ
Útskrift úr fundargerðarbók
stjórnar L. I. frá 19. maí 1969
Fundur í stjórn L.í. 19. maí 1969, kl. 20.00 í Domus Medica.
Mættir: Stefán Bogason og Friðrik Sveinsson, en Arinbjörn Kol-
beinsson, formaður L.Í., er erlendis. Þá var og mættur Daníel Daníels-
son, sjúkrahúslæknir í Húsavík, og enn fremur Guðmundur Ingvi
Sigurðsson hrl., en Daníel hafði óskað eftir fundi með honum og stjórn
L.í.
I. MÁL
Reglugerð um störf lækna við' Sjúkrahúsið í Húsavík.
Reglugerðin hefur fengið staðfestingu viðkomandi ráðuneytis, Páll
Gíslason, yfirlæknir á Akranesi, var fulltrúi L.í. við samningu hennar.
Daníel rakti stuttlega aðdraganda að stofnun stöðu yfirlæknis við
sjúkrahúsið í Húsavík. Hann lagði áherzlu á, að aldrei hefði verið rætt
um að breyta því í opið sjúkrahús.
Hann hélt því fram, að umrædd reglugerð bryti í bága við sjúkra-
húsalögin, og bar það álit sitt undir Guðmund Ingva Sigurðsson hrl.
Guðmundur kvaðst ekki geta látið í ljós álit sitt, að ekki betur
athuguðu máli, en hitt væri rétt, að ef reglugerðin bryti í bága við
sjúkrahúsalögin, yrði reglugerðin að víkja.
Voru málin nú rædd nánara og rýnt í sjúkrahúsalögin og um-
rædda reglugerð um störf lækna á sjúkrahúsinu í Húsavík.
Eftir það lét G. I. S. það álit í ljós, að sér virtist sem reglugerðin
bryti í bága við sjúkrahúsalögin og gengi of langt í að rýra völd ráðins
yfirlæknis við sjúkrahúsið.
Daníel Daníelsson, ráðinn yfirlæknir, gæti því staðið fast á rétti
sínum samkv. sjúkrahúsalögunum, ef í odda skerst um framkvæmd
reglugerðarinnar, en benti jafnframt á, að sjúkrahússtjórn gæti sagt
honum upp starfi með löglegum fyrirvara, svo fremi, að hann hefði
ekki sérsamninga, sem gengju í aðra átt.
Hins vegar lagði Guðm. I. Sigurðsson til, að Daníel reyndi til
hlítar samstarf við læknana, samkvæmt reglugerðinni, og léti á það
reyna, hvernig til tækist.
Þá benti Guðmundur I. Sigurðsson á, að sér fyndist umrædd reglu-
gerð að sínum dómi gölluð; því væri rétt af stjórn L.í. að yfirfara hana,
því að hætta sé á, að hún verði í framtíðinni notuð sem fordæmi
annarra hliðstæðra reglugerða.
Loks bar Daníel Daníelsson fram þá fyrirspurn til stjórnarmeð-
lima L.Í., hvort stjórn L.í. bæri ekki skylda til þess að leitast við
að rétta hlut þeirra félagsmanna, sem væru misrétti beittir.
Mættir stjórnarmenn staðfestu, að svo væri.
Daníel kvaðst þá geyma sér allan rétt til þess að leita til stjórnar
L.Í., ef honum reyndist þörf á því síðar.
Fleira ekki gert. Fundi slitið,
Friðrik Sveinsson,
ritari