Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.08.1971, Page 38

Læknablaðið - 01.08.1971, Page 38
142 LÆKNABLAÐIÐ Páll V. G. Kolka afhendir formanni L. f. myndina „Minning Pasteurs“. Þegar formaður L.í. var staddur í London í byrjun september, ræddi hann við Dr. Pallister, sem annast erlend sambönd fyrir British Medical Association, og spurði hann, hvort brezka læknafélagið gæti sent fyrirlesara til íslands til þess að ræða um framhaldsmenntun almennra lækna í Bretlandi. Tók Dr. Pallister máli þessu mjög vel og sagði það engum vandkvæðum bundið að finna vel hæfan fyrir- lesara til að taka að sér þetta efni og verða jafnframt fulltrúi B.M.A. á afmælishátíð Læknafélags íslands. Þetta mál var síðan rætt á stjórnarfundi L.Í., eftir að formaður kom heim. Var ákveðið að skrifa Dr. Pallister bréf um málið 10. september 1968. Þessu bréfi var svarað af aðalritara brezka læknafélagsins, Dr. Stevenson, og var þá skýrt frá því, að Dr. James Cameron mundi verða fulltrúi brezka læknafélagsins og flytja erindi um áðurnefnd efni á heilbrigðisráðstefnunni. í lok september höfðu borizt bréf frá erlendu læknafélögunum, sem boðið hafði verið að senda fulltrúa, og höfðu öll þegið boðið nema danska læknafélagið. Afmælishátíðin var auglýst læknum með sérstakri auglýsingu. Tímatakmörk til skrásetningar voru til 20. september, en fram- lengd til 25. sept., og höfðu þá skráð sig rúmir 170 þátttakendur, að gestum meðtöldum. Var þetta í fyrsta skipti, sem svo stór háborðs-

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.