Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.10.1971, Page 77

Læknablaðið - 01.10.1971, Page 77
LÆKNABLAÐIÐ 221 hafi Læknablaðs síns. Ég ætla ekki að fjöljrrða um tæknileg kennslu- gögn, sem nú eru mest í tízku, um þau vitið þið flest jafnvel og ég, heldur hef ég frekar í huga að drepa á hinar klassisku aðferðir okkar til þess að afla viðhaldsmenntunar, — þær sem stéttarfélagið getur aðstoðað okkur við. Aðalverkefni þess er þó auðvitað að sjá okkur fyrir nauðsynlegum tíma til viðhaldsmenntunarinnar, um leið og það berst fyrir bættum kjörum. Ég hef þegar drepið á nauðsyn þess að athuga, í hverju starf okkar er fólgið til þess að skapa forgangsröð við svörun menntunar- krafnanna. Hins vegar hefur ekki verið minnzt á, að mikið af við- haldsmenntun okkar er að vissu leyti fólgið í starfinu sjálfu. Ef við erum vakandi og höldum sjálfsgagnrýni okkar og dómgreind, er starfi okkar, sem betur fer, þannig farið, að það gefur okkur sífelld tilefni til nýrrar íhugunar og leitar að betri aðferðum og skýringum. Ef starfið á að verða okkur menntunargjafi, er nauðsynlegt, að við vinnum það svo vel, að það þoli endurskoðun starfsbræðra okkar. Þannig er hlutverk starfsnefnda læknaráða sjúkrahúsanna að endur- skoða störf hinna ýmsu lækna, fyrst og fremst til að minna menn á og benda á, hvar þeir þurfi og geti bætt þjónustu sína og þannig að hvetja lækna til frekari menntunar. Nærtækasta leiðin fyrir flesta til þess að halda við menntun sinni er með lestri sérfræðirita og bóka, og með umræðum við starfsbræður sína, bæði í sérgreininni og aðra, sem geta hjálpað manni til þess að skýra eigin hugsun. Til þess að lesturinn og slíkar umræður geti borið tilætlaðan árangur, þarf að vera tími til þess að sinna hvorttveggja, bæði til þess að veita og og þiggja. Einnig þarf að vera aðgangur að góðu bókasafni með þeim tímaritum og bókum, sem mestu máli skipta í viðkomandi sérgrein og með góðri þjónustu. í fjórða lagi er rétt að minnast á hvers konar fundi, fyrst og fremst fræðslufundi læknafélaganna og á einstökum sjúkrahúsum, sem nauðsynlegt er að sækja. Þeir geta alltaf veitt okk- ur nokkurn fróðleik, ef ekki í eigin grein, þá um hag náungans, sem okkur hættir alltof mikið til að gleyma. Mjög áberandi er, hversu fund- arsókn í læknafélögum hefur versnað á síðustu árum og einangrunar- stefnan hefur aukizt, að því er virðist. Kemur þetta fram í því, að læknar sækja fyrst og fremst þá fundi, sem þeir tala á sjálfir eða einhver af þeirra nánustu samstarfsmönnum, ef svo vill til að fund- irnir eru haldnir í þeim sjúkrahúsum, sem þeir sjálfir vinna í. Víða erlendis eru skipulögð mismunandi löng námskeið fyrir sérfræðinga til þess að kynna þeim nýjungar og framfarir í greinum sínum. Hér á landi er tæpast grundvöllur fyrir slíku námskeiðshaldi í einstökum greinum, þar eð sérfræðingarnir eru ekki það margir í neinni grein. Þess vegna er nauðsynlegt að koma upp eins konar námshópum, sem sérfræðingafélögin gætu staðið fyrir, ef áhugi er nægur, því að nokk- uð getum við lært hver af öðrum. Jafnframt er mjög nauðsynlegt að séfræðingar fari utan oft og títt til þess að sækja sérfræðinámskeið þar, eða til þess að starfa með sér reyndari og lærðari mönnum eða til þess að starfa sjálfir að einhverju ákveðnu verkefni við erlend menntasetur. Hinir stóru alþjóðafundir, sem haldnir eru með fárra ára millibili hafa sætt vaxandi gagnrýni, vegna þess að ekki sé nokk-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.