Læknablaðið - 01.04.1973, Side 76
88
LÆ.KNABLAÐIÖ
Úr gömlum Imknablödum
AM’ffaBtí
HOLDIÐ OG ANDINN
Það er hætta á því, að margir læknar
bíði tjón á sálu sinni við það, að hafa há,
föst laun, en illa borguð aukaverk. Það
verður einhvern tíma barátta milli holds-
ins og andans, ef þeir eiga að fara í mörg
ferðalög fyrir 30 aura um klst. Það er þá
freisting að láta sér nægja með að láta út.i
lyf eftir sjúkdómslýsingu einni, ef hægt
er að komast hjá ferð, eins og áður fyr,
þegar héruðin náðu yfir hálfan lands-
fjórðung. „Og því er nú andskotans ver,
að læknarnir eru bara menn“, eins og
landslæknirinn sagði í þingræðu hér á ár-
unum. Það er líka freisting fyrir þá að
halda í embætti sitt sem lengst, jafnvel
eftir að þeir eru orðnir ófærir til að
gegna því fyrir elli sakir eða lasleika. Ef
taxtinn væri hærri og föstu launin lægri,
fengju bæði holdið og andinn sitt og
mættu hvorttveggja vel við una.
Læknablaðið 1921. (Kolka).
MESTI MÁLARINN
Þórður Guðjóhnsen, læknir í Rönne, er
orðinn frægur fyrir fjallgöngur sínar og
ferðalög. Nýlega heíir hann gengið upp
á Kebenkaise, hæsta fjall í Norður-Svíþjóð
og fundið nýja leið og betri upp á fjallið.
Hefir hann ritað grein um þetta í sænskt
tímarit og má sjá mynd af jökli þessum
og spor Þórðar í snjónum, þ. e. braut hans
yfir ófæruna. Annars hefir hann ritað
heila bók um ferðalög sín á Bjarmalandi
og gert fjölda litmynda af þessum slóðum.
Er Þórður mestur málari af öllum íslenzk-
um læknum. Bók þessi er óprentuð enn,
en ótrúlegt að hún komi ekki fyrir al-
menningssjónir áður lýkur.
Læknablaðið 1921.
GAMLAR MANNMÆLINGAR
Mér er sagt, að fyrir rúmum 80 árum
hafi klerkur lifað á Úthéraði eystra, sem
fann upp á því að taka mál af öllum
mönnum, sem hann náði í. Hafði hann
fyllt 2 bækur allstórar með mælingum
sínum. Hefir nokkur læknir heyrt þessa
getið, eða veit nokkur um hvað af bókum
þessum hefir orðið? Eitt af því, sem klerk-
ur mældi nákvæmlega voru pudenda
manna!
Læknablaðið 1921.
OVARIOTOMI Á SKRIFSTOFUNNI
Jón Foss gerði eitt sinn ovariotomi á
67 ára konu, sem fengið hafði torsio á
cystoma ovarii með þeim skyndilegu og
alvarlegu einkennum, sem því fylgja. Um
sjúkrahús og önnur tilfæri var ekki að
gera, svo Jón lét smíða í snatri borð, sem
konan gæti legið á, og gerði laparotomi á
skrifstofu sinni. Tumor var á 12 ctmt.
svæði vaxinn við garnir og öllu meira við
magál. Þetta tókst að losa og taka tumor
burtu — og alt gekk vel.
Dæmi þetta er eitt af mörgum, sem
sýnir, að margt má gera án mikils út-
búnaðar, ef nauðsyn krefur. Og hér var
þó ekki um alvanan mann að ræða, því
Jón hafði þá nýlega lokið prófi. Hefir
gleymst að geta um þetta fyr í LbL, en
fleiri sögur svipaðar gæti eg sagt af sjálf-
um mér og öðrum. — Sjúkrahús með að-
stoð og góðum útbúnaði er góður hlutur,
en ekki conditio sine qua non — ef læknir-
inn dugir.
G. H.
Læknablaðið 1921.