Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.2007, Qupperneq 40

Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.2007, Qupperneq 40
föstudagur 23. mars 200740 Ættfræði DV ættfræði Ættfræði DVKjartan gunnar Kjartansson rekur ættir þjóðþekktra Íslendinga sem hafa verið í fréttum liðna viku, rifjar upp fréttnæma viðburði liðinna ára og minnist horfinna merkra Íslendinga. Lesendur geta sent inn tilkynningar um stórafmæli á netfangið kgk@dv.isU m s j ó n : K j a r t a n G u n n a r K j a r t a n s s o n N e t f a n g k g k @ s i m n e t . i s Nú fyrir skömmu keypti athafna- og fjármálamaðurinn Björgólfur Thor, húsið Fríkirkjuveg 11 af Reykjavík- urborg, en um þessar mundir eru hundrað ár liðin frá því langafi hans, Thor Jensen, lét hefjast handa um að reisa þetta glæsilegasta einbýlishús sem risið hefur á Íslandi. Ættfaðir Thorsaranna Hinn stórhuga húsbyggjandi sem hét fullu nafni Thor Philip Axel Jensen, fæddist í Kaupmannahöfn 3.12. 1863. Faðir hans var vel efn- aður húsasmíðameistari sem þó missti eigur sínar skömmu eftir að Thor fæddist og lést er Thor var átta ára. Thor stundaði nám við virtan heimavistarskóla í Kaupmanna- höfn, kom fjórtán ára til Íslands og var þá verslunarsveinn á Borðeyri, varð síðar verslunarstjóri í Borgar- nesi, efnaðist umtalsvert á sauða- sölu til Bretlands og var um skeið mesti sauðabóndi á Vestur- og Suð- urlandi, og stundaði útgerð og versl- un á Akranesi um aldamótin 1900. Þá missti hann aleiguna og varð gjaldþrota. Thor og kona hans, Margrét Þor- björg Kristjánsdóttir, komu suð- ur 1901 með tvær hendur tómar og börnin sín sjö sem þá voru fædd. Þau gerðu stuttan stans í Hafnar- firði en fluttu síðar til Reykjavíkur þar sem þau bjuggu meðal annars í gamla pósthúsinu við Pósthús- stræti. Thor tók aftur til við kaup- mennsku og braut þá blað í verslun- arsögu bæjarins með því að bjóða útgerðarbændum betri vörur á lægra verði en dönsku kaupmenn- irnir í Reykjavík höfðu komið sér saman um. Hann hóf síðan þilskipa- útgerð og á örfáum árum varð hann einn helsti athafnamaður landsins, átti eftir að stofna og reka um árabil, ásamt sonum sínum, langstærsta útgerðarfyrirtæki landsins, Kveld- úlf, reisa síldarverksmiðjur og reka búskap víða, meðal annars á Korp- úlfsstöðum, þar sem hann reisti full- komnasta kúabú á Norðurlöndum. Thor var feikilega fjölhæfur mað- ur, hugmyndaríkur, harðduglegur, víðsýnn og víðlesinn. Hann lét sér annt um hag starfsmanna sinna, setti sín eigin Vökulög áður en slík lög voru samþykkt á Alþingi og kom upp eldhúsi og skipulagði matargjaf- ir til fjölda Reykvískra fjölskyldna er Spánska veikin geysaði hér 1918. Nokkur hundruð Reykvíkingar þáðu þar mat þegar mest var, þar af um 450 börn. Landlæknistún verður Hallargarður Þegar Thor festi kaup á lóð undir Fríkirkjuveg 11 í túni Jónasar Jónasen landlæknis á svonefndum Útsuður- svelli, náði Fríkirkjuvegurinn aðeins að Fríkirkjunni. Vík úr Tjörninni náði austur yfir núverandi Fríkirkjuveg og inn í núverandi Hallargarð. Thor keypti víkina af bænum, fyllti hana upp, lét sjálfur framlengja Fríkirkju- veginn að sínu húsi, og lét hlaða grjót- garð meðfram Tjörinni. Um þetta leyti voru nýrisin timburhúsin, vest- an verðu Tjarnarinnar við Tjarnar- götu, sem flest voru byggð af hásett- um embættismönnum í bænum. Teiknaði sjálfur húsið Segja má með nokkrum rétti að Thor hafi sjálfur teiknað Fríkirkju- veg 11. Hann hafði mikinn áhuga á byggingarlist, sökkti sér niður í fræðigreinina á Landsbókasafninu og teiknaði upp grófa hugmynd að húsinu sem Einar Erlendsson húsa- smíðameistari útfærði endanlega. Húsið er í nýklassískum stíl, minn- ir mjög á gamlar ítalskar villur, en helstu ytri einkenni þess eru valma- þakið, skrautlegar svalir og jónískar súlur. Yfirsmiður við húsið var Stein- grímur Guðmundsson húsasmíða- meistari, tengdafaðir Hermanns Jónassonar síðar forsætisráðherra, föður Steingríms, fyrrv. forsætis- ráðherra. Upp komið kostaði húsið 125.000,- krónur sem var álíka mikil upphæð og öll gjöld Reykjavíkurbæj- ar árið 1908. Höfðingjahöll með nútíma þægindum Fyrsta hæð hússins er 268 fermetr- ar en önnur hæðin 242. Að kjallar- anum undanskildum voru fimmtán herbergi í húsinu. Niðri voru eld- hús og sex herbergi. Að austan verðu var skrifstofa húsbóndans, dagstofa og vinnustofa húsfreyjunnar en að vestan verðu var borðstofa, salur og Rauða stofan svo kallaða. Uppi voru átta svefnherbergi og lestrarstofa. Þá hafði Thor vínkjallara og billjard- stofu í kjallaranum. Í húsinu var vatnslögn fyrir heitt og kalt vatn sem þá voru óþekkt þæg- indi, göldrum líkust. Þá var rafmagn leitt í húsið frá ljósavél bakatil, 16 árum áður en rafmagn var leitt í bæ- inn frá Elliðaárvirkjun. Þótti sumum nóg um og nánast ósmekklegt til- dur að vera með rafljós inná nýtísku vatnssalernum. Frá flestum húsum við Tjörnina var allt skolp leitt út í Tjörnina. Það tók Thor hins vegar ekki í mál en lét þess í stað grafa stóra rotþró fyr- ir austan húsið. Hann var auk þess með hesthús fyrir gæðinga sína, fjós með nokkrum kúm og hlöðu á lóð- inni. Hugmyndir um seðlabanka og ráðhús Thor og Þorbjörg bjuggu í hús- inu til 1937 er þau fluttu að Lága- felli í Mosfellsbæ þar sem þau áttu heima til dauðadags. Þorbjörg lést 1945 en Thor 1947. Einn sona þeirra bjó með fjölskyldu sinni í húsinu um skeið en 1942 eignaðist Góðtempl- arareglan húsið sem þá var gjarnan nefnt Templarahöllin. Reykjavíkur- borg eignaðist svo húsið 1963 og hef- ur það verið í eigu borgarinnar þar til nú fyrir skemmstu að Björgólfur Thor, einn niðja Thors og Þorbjargar, festi kaup á því. Árið 1967 gerði Reykjavíkurborg samkomulag við Seðlabankann um makaskipti á lóðunum Lækjargötu 4 og Fríkirkjuvegi 11 í því skyni að Seðlabankinn risi í Hallargarðin- um. Frá því var þó horfið árið 1971 vegna andmæla ýmissa málsmet- andi manna og fékk Seðlabankinn þá lóð sína nyrst í Arnarhólstúni þar sem bankinn reis á endanum þrátt fyrir öflug mótmæli. Í löngu karpi um ráðhús við Tjörnina var svo þeirri athyglisverðu hugmynd nokkrum sinnum hreyft að gera Fríkirkjuveg 11 að aðalbygg- ingu ráðhúss Reykjavíkur en byggja síðan baka til og að einhverju leyti neðanjarðar, skrifstofuálmur í stíl við húsið sjálft. Af þessu varð þó aldrei en í staðinn byggt ráðhús við norður- enda Tjarnarinnar sem óneitanlega stingur í stúf við gömlu timburhúsin við Tjörnina. Nú er hins vegar þetta tæplega hundrað ára gamla hús aftur komið í eigu Thorsara. Líklega verður engum betur treystandi en Björgólfi Thor til að varðveita húsið og sögu þess og halda í heiðri minningu Thors Jen- sen, eins merkasta athafnamanns Ís- landssögunnar. Ættaróðal Thorsaranna við Tjörnina Margrét Þorbjörg Kristjánsdóttir húsfreyja Thor P.A. Jensen athafnamaður Camilla Thors húsmóðr Richard Thors, Kveldúlfs forstjóri KjartanThors, formaður VSÍ ÓlafurThors, forsætisráðherra HaukurThors, forstjóri í Rvík KristínThors, húsmóðir í Rvík Kristjana Thors, húsmóðir í Svíþjóð Margrét Þ.Thors, húsmóðir í Rvík Thor H.Thors, sendiherra í Washington Lorentz Thors, Korpúlfsstöðum bústjóri á Hilmar Thors, lögfræðingur í Rvík Unnur T. Briem, húsmóðir í Rvík Richard Ó. Briem, arkitekt í Rvík Björn Thors, blaðamaður í Rvík Stefán Thors, skipulagsstjóri ríkisins Kjartan Thors jarðfræðingur ThorThors. forstjóri Íslenskra aðalverktaka Marta Thors, húsmóðir í Rvík Guðrún Pétursdóttir, forstöðukona Ólöf Pétursdóttir, dómstjóri Ragnheiður Hafstein, forsætisráðh.frú Pétur Hafstein, fyrrv. hæsta- réttardómari Örnólfur Thorsson forsetaritari Guðmundur Andri Thorsson bókmenntafr. Margrét Þóra Hallgrímsson húsm. í Rvík Björgólfur Thor Björgólfsson, athafnamaður Thor H.Thors, bankastjóri í Bandaríkjunum JónThors, fyrrv. deildarstj. í dómsmálaráðun. Ólafur B. Thors, fyrrv. forstjóri og forseti borgarstj. BorghildurThors, húsmóðir í Rvík Hilmar Oddsson tónskáld Vilhjálmsson rithöfundur Thor Börn Thors Philip Axel Jensen og Margrétar Þorbjargar Kristjánsdóttur og nokkrir niðjar þeirra
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.