Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.2007, Side 6
Þórður Magnússon, talsmaður Torfu-
samtakanna, heldur því fram að
verndunartillögur um hús sem reist
voru fyrir 1918 séu ítrekað hunsaðar
og að engin húsverndunarstefna sé í
gildi hjá Reykjavíkurborg.
Nýverið samþykkti meirihlutinn
í Reykjavíkurborg niðurrif á húsum
númer 33, 33a, 35 og 35a við Lauga-
veg auk húss að Vatnsstíg 4. Húsin
eru flest ævagömul á íslenskan mæli-
kvarða, frá um 90 til 113 ára.
„Þetta er einn af þeim reitum sem
hafa gengið kaupum og sölum um
árabil,“ segir Þórður og bendir á að nú
eigi samkvæmt tillögu lóðareiganda
að byggja L-laga risabyggingu sem
nær yfir öll húsin á Laugavegi og lang-
leiðina niður á Hverfisgötu.
Í nýjustu tillögunum mun allt
landsvæði á bak við byggingarnar
fara undir nýju bygginguna sem mun
skilja eftir eins hæða smávaxið 40 fer-
metra hús einangrað í bakgarði.
„Upphaflega skýringin á niður-
rifi var sú að verið væri að liðka fyr-
ir verslunarstarfsemi, en samkvæmt
nýjustu útfærslu eiganda mun þar
rísa íbúðarhúsnæði,“ segir Þórður.
Öll hús byggð fyrir
1918 skulu standa
Árið 1994 var sett á fót Húsvernd-
arnefnd Reykjavíkur sem átti að koma
með verndunartillögur í eldri hverf-
um Reykjavíkur. Þessi nefnd skilaði af
sér greinargerð þar sem gert var ráð
fyrir að meginreglan yrði að hús eldri
en frá 1918 fengju að standa áfram
með vísan í þjóðminjalög.
Árið 2002 var stofnuð ný nefnd á
vegum Reykjavíkurborgar sem átti að
endurskoða drög að deiliskipulagi og
ná sátt við ákveðna verslunarmenn
við Laugaveg. Húsverndarnefndin
frá 1994 hafði ekki ályktað sérstaklega
um hús byggð fyrir 1918 og því komst
nýja nefndin að þeirri niðurstöðu
að rífa mætti þrjú af hverjum fjórum
húsum byggðum fyrir 1918.
„Nú voru rökin þau að fyrst fyrri
nefndin hefði ekkert ályktað um
gömlu húsin, þá skiptu þau engu
máli,“ segir Þórður ennfremur.
Gömul hús eru ekki vernduð
Jóhannes S. Kjarval arkitekt skipu-
lagsmála miðborgarinnar hjá Reykja-
víkurborg segir að húsin við Lauga-
veg 33 til 35 séu á engan hátt algerlega
vernduð gegn niðurrifi. „Árið 1996
gaf nefnd á vegum Reykjavíkurborg-
ar út þemahefti um verndun byggð-
ar innan Hringbrautar, sem var sam-
þykkt af borgarstjórn. Þemaheftið er
enn þann dag í dag fylgirit við aðal-
skipulag,“ segir Jóhannes.
Hann staðfestir að kúvending hafi
átt sér stað hvað varðar verndun húsa
byggðra fyrir 1918 og sé nú hægt að
sækja um niðurrif á þeim. „Ef breyta
skal húsi eða rífa sem byggt er fyr-
ir 1918 verður eftir sem áður að leita
álits húsafriðunarnefndar ríksins og
þjóðminjavarðar,“ segir Jóhannes.
Stjörnubíóreiturinn undir
íbúðahúsnæði
Þórður segir að annað dæmi um
viðlíka þróun hafi átt sér stað á svo-
kölluðum Stjörnubíóreit þar sem
samnefnt bíó stóð.
„Upphaflega voru það verslunar-
menn sem fengu að ráða því hversu
mikið var rifið í því skyni að verslun
myndi eflast í kjölfarið,“ segir Þórður.
Hann bendir jafnframt á að nú hafi
stærstur hluti
Stjörnu-
bíór-
eitsins verið nýttur undir íbúðahús-
næði og bílastæði, en einungis lítill
hluti sem verslunarhúsnæði. Flest all-
ar íbúðirnar eru enn óseldar sam-
kvæmt söluyfirliti fasteignasala.
Verslunarhúsnæði
svarar ekki kostnaði
Þess eru dæmi að byggingafyrir-
tæki kaupi lóðir til þess eins að sækja
um aukið byggingarmagn svo
hægt sé að selja þær í kjöl-
farið með hagn-
aði.
Þórður bendir á að eigandi fyrr-
greindrar lóðar á horni Laugavegs
og Vitastígs hafi óskað eftir aukningu
á byggingarmagni og var það heim-
ilað. „Með það í vasanum seldi
þriðjudagur 3. apríl 20076 Fréttir DV
Húsverndarnefnd
Reykjavíkur vildi að öll
hús sem byggð voru fyrir
1918 fengju að standa. Nú
hefur verið veitt leyfi til
að rífa þrjú af hverjum
fjórum þessara húsa.
Verktakar geta setið á
eignum og lóðum án þess
að aðhafast nokkuð.
AldAgömul hús víkjA
blaðamaður skrifar: skorri@dv.is
Skorri GíSlaSon
Húsin við laugaveg 33 til 35 eru á bilinu 90 til 113 ára gömul 105 ára timburhús sem síðar var klætt með steinhúð.
laugavegur 33a, allavega 90 ára viðbygging við laugaveg 33. laugavegur 35, 93 ára steinhús og fyrsta bygging Einars
Erlendssonar arkitekts. laugavegur 35a, 113 ára hús.
Tillaga lóðareiganda Stórhýsi sem
nær yfir ystu mörk laugavegs 33 til 35
og langleiðina niður á Hverfisgötu.