Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.2007, Side 11
DV Fréttir þriðjudagur 3. apríl 2007 11
Jarðaður fjórum sinnum
Zviad Gamsakhurdia, fyrsti forseti Ge-
orgíu eftir að landið öðlaðist sjálfstæði
árið 1991, var borinn til grafar í Tblisi,
höfuðborg landsins á sunnudag. Þetta
var í fjórða skiptið sem hann var jarð-
settur en hann lést fyrir fjórtan árum,
þegar hann reyndi að gera uppreisn
gegn þáverandi forseta. Eftir það var
hann jarðaður í Zugdidi borg í vestur-
hluta landsins. Líkið var síðan flutt til
Tétseníu og fannst í höfuðborg þess,
Grosní, í síðasta mánuði. Gamsak-
hurdia hraktist frá völdum í ársbyrj-
un 1992 eftir nokkra mánaða setu á
forsetastóli.
Setur met í fjáröflun
Kosningabarátta Hillary Clinton
í forvali Demókrataflokksins fyrir
forsetakosningarnar í Bandaríkjun-
um á næsta ári fer vel af stað.
Samkvæmt fréttavef BBC tilkynnti
kosningastjóri hennar að á fyrsta
fjórðungi ársins hafi safnast sem
samsvarar 1,7 milljarði króna í
kosningasjóð hennar. Þetta ku vera
hærri fjárhæð en dæmi eru um í
bandarískum stjórnmálum.
Fimmtíu þúsund manns hafa látið
af hendi fé í sjóð Hillary Clinton og
langflestir borgað 100 dollara eða
minna.
Biskupar gagnrýna Mugabe
Þótt leiðtogar Afríkuríkja hafi lýst
yfir stuðningi við Robert Mugabe,
forseta Zimbabve, í síðustu viku þá
eykst andstaðan við ríkisstjórn hans
innanlands. Kaþólskir biskupar í
landinu sameinuðust í gagnrýni
á hann í bréfi sem lesið var upp í
kirkjum landsins á sunnudag. Saka
þeir hann um spillingu, græðgi og
ofbeldi. Líkja þeir baráttunni gegn
Mugabe nú við baráttuna gegn
stjórn hvíta minnihlutans á sínum
tíma. Biskupar kaþólsku kirkjunn-
ar hafa flestir hverjir ekki gagnrýnt
störf forsetans opinberlega áður.
Ríkisstjórn Danmerkur ræðst í 5 milljarða króna kynningarátak:
DANMÖRK MEIRA EN BEIKON,
SMJÖR OG H.C. ANDERSEN
Nú skal ráða bót á vanþekkingu
heimsbyggðarinnar á Danmörku.
Ætlar ríkisstjórn landsins að verja
sem svarar fimm milljörðum ís-
lenskra króna í fjögurra ára átak til að
auka þekkingu útlendinga á landinu.
Á fundi með blaðamönnum í gær
sagði Bendt Bendtsen, viðskiptaráð-
herra að ekki dugi lengur að útlend-
ingar tengi aðeins beikon, smjör og
verk H.C. Andersen við landið. Hann
segir öll þessi atriði jákvæð en þau
gefi ranga mynd af því nútímalega
samfélagi sem Danmörk er, sam-
kvæmt frétt á vefsíðu Politiken í gær.
Í gær voru 102 ár liðin frá fæðingaraf-
mæli H.C. Andersen.
Á að lokka fjárfesta
og ferðamenn
Ráðherrann segir markmið-
ið með átakinu vera að gefa heims-
byggðinni skýra og jákvæða mynd af
Danmörku og auka þekkingu fólks
á styrkleikum og hæfni þjóðarinn-
ar. Það muni verða til þess að fleiri
fjárfestar, ferðamenn og námsmenn
líti á landið sem vænan kost fyrir sig.
Eru ákveðnar upphæðir eyrnamerkt-
ar kynningu á landinu fyrir þessa þrjá
mismunandi hópa. Einnig munu
danskar útflutningsgreinar fá aukið
opinbert fjármagn til að markaðs-
setja sig og andvirði um hálfs millj-
arðs íslenskra króna verður varið í
kynningu á sköpunargleði landans.
Árið 2009 verður sérstaklega helg-
að íþróttum enda telur ráðherrann
mikilvægt að fá stóra íþróttaviðburði
til landsins til að fá athygli. Hugs-
anlegt boð Kaupmannahafnar í Ól-
ympíuleikana árið 2024 er hins vegar
ekki hluti af þessari áætlun og seg-
ir Bendtsen að ríkisstjórn landsins
muni fyrst eftir fjögur ár taka ákvörð-
un í því máli.
H.C. Andersen Verk hans skekkja ímynd danmerkur að mati ríkisstjórnar landsins.
Frá og með sunnudeginum
verður afgreiðslufólk í Rússlandi
að hafa rússneskt vegabréf. Mann-
réttindasamtök í landinu gagn-
rýna þessi nýju lög sem ætlað er að
útiloka erlent vinnuafl frá störfum
á matar- og fatamörkuðum í Rúss-
landi og þúsundum vegasjoppa,
samkvæmt frétt The Independent
í gær. Þetta eru í flestum tilfellum
láglaunastörf þar sem vinnutím-
inn er um tólf tímar á dag. Fram
að gildistöku laganna var algengt
að innflytjendur frá fyrrverandi
Sovétlýðveldum ynnu þessi störf.
Er reiknað með að hundruð þús-
unda farandverkamanna séu nú
í leit að nýrri vinnu í Rússlandi
vegna breytinganna. Margir hafa
snúið til síns heima, til að mynda
Kínverjar sem unnu í austurhluta
Rússlands. Óttast sumir gagnrýn-
endur laganna að verðlag muni
hækka vegna þeirra þar sem Rúss-
ar muni ekki fást til að vinna þessi
störf fyrir sama kaup né þennan
langa vinnudag.
Elur á kynþáttafordómum
Rússnesk stjórnvöld vísa á bug
þeim fullyrðingum mannréttinda-
samtaka að lögin auki kynþátta-
fordóma í landinu. Segja þau lögin
einfaldlega eiga að vernda atvinnu-
réttindi landsmanna. Einnig vonast
þau til að skipulag komist á þessa
markaði og hreinlæti muni batna
samfara breyttu starfsumhverfi.
Haft er eftir forsvarsmanni alþjóð-
legra mannréttindasamtaka í grein
blaðsins að lögin auki útlendinga-
hatur og valdi mismunun í landinu.
Stjórnvöld séu því sek um kynþátta-
fordóma sem sé slæmt í ljósi þess
að ofbeldi gagnvart innflytjendum
hefur aukist í Rússlandi.
Rússnesk stjórnvöld takmarka atvinnumöguleika útlendinga:
Banna erlent vinnuafl á mörkuðum
Á matarmarkaði Útlendingar mega ekki lengur afgreiða á rússneskum
mörkuðum.
neska athafnamenn og nýtur, eins
og áður hefur komið fram, vinfeng-
is við Vladimír Pútín, forseta Rúss-
lands.
Stjórnarkreppa
Nú stendur Viktor Jútsjenkó
frammi fyrir stjórnarkreppu, sem
margir stjórnmálaskýrendur segja
vera þá alvarlegustu í sögu Úkr-
aínu. Forsetinn hefur leyst upp
þing og boðað til nýrra kosninga,
en stuðningsmenn hans óttuð-
ust að hann yrði sviptur völdum
með ólöglegum hætti. Fyrrverandi
bandamaður Jútsjenkós, Júlía Tím-
ósjenkó, sem fylgdi honum að mál-
um í byltingunni appelsínugulu, lét
af stuðningi við hann eftir að hann
rak hana úr ríkisstjórn og leit út fyrir
að Janúkovítsj nýtti sér þann klofn-
ing til að auka þingmeirihluta sinn
í 300 þingsæti af 450. Hann hefur
nýtt sér meirihlutann til að draga
verulega úr framkvæmdavaldi for-
setans. Vonir Evrópusambandsins,
hafa ekki gengið eftir og í fyrsta sinn
í sögu Úkraínu hefur þing verið
leyst upp, nýjar kosningar boðaðar
og stjórnarkreppa er staðreynd.
JÚTSJENKÓ HEFUR
LEYST UPP ÞINGIÐ
n Úkraína: Fékk sjálfstæði
frá Sovétríkjunum 1991
n Höfuðborg: Kiev, Kænugarður
n Forseti: Viktor jútsjenkó
n Forsætisráðherra:
Viktor janúkovítsj
n Opinbert tungumál: Úkraínska
n Stærð: 603.700 ferkílómetrar
n Stjórnarfar: þingræði
n Fólksfjöldi: 46 milljónir
n Trúarbrögð: Kristin rétttrú,
kaþólska, mótmælendatrú og
gyðingatrú.
Úkraína
Viktor Jútsjenkó Forsetinn sem komst til valda í appelsínugulu
byltingunni leysti upp þingið og boðaði til kosninga.
Appelsínugula byltingin
Fylgismenn jútsjenskó og samherja hans
flykktust út á götur Kænugarðs, höfuðborg-
ar Úkraínu, þegar yfirvöld ætluðu að lýsa
andstæðing hans sigurvegara.