Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.2007, Qupperneq 12
Margrét Pála Ólafsdóttir, skólafrömuður, kom róti
á huga margra í síðustu viku. Hún benti á að miðstýrð
ríkisrekin stjórnkerfi velferðarþjónustunnar væru
helsti Þrándur í götu raunverulegs kvenfrelsis. Fyrir
nokkrum áratugum var hlutur kynjanna í störfum
hjá hinu opinbera jafnari. Síðan hefur það gerst að
fjölmörg verkefni sem áður voru í höndum opinberra
aðila eru nú boðin út.
Þeim verkefnum er
í ríkari mæli sinnt af
körlum. Hið opinbera kerfi hefur síðan orðið sífellt
miðstýrðara. Konur eru nú í miklum meirihluta
meðal starfsmanna í velferðarþjónustu, en karlarnir
hlutfallslega fleiri í stjórnunarstöðum hjá hinu
opinbera. Konurnar eru því „vinnukonur kerfisins“
og ráða litlu um sitt nánasta umhverfi.
Miðstýrt skólakerfi
Staðreyndin er sú að rekstrarkerfi
velferðarþjónustunnar hér á landi er með því
miðstýrðasta sem þekkist í lýðfrjálsu landi. Nær öll
börn eru í skólum sem reknir eru af hinu opinbera.
Skólastjórnendur og kennarar hafa sífellt minna
ráð yfir tíma sínum og eru bundin af ósveigjanlegri
aðalnámskrá. Sjálfstæðisflokkurinn hefur haft með
höndum stjórn menntamála í 20 ár af síðustu 23 árum.
Afraksturinn er einhæft menntakerfi, lítil fjölbreytni
og fá tækifæri. Brottfall úr framhaldsskólum er
meira en í nokkru öðru Evrópuríki. Með öflugri
mótstöðu Samfylkingarinnar tókst að hrinda síðustu
atlögu menntamálaráðherra Sjálfstæðisflokksins
að sjálfstæðri hugsun í skólamálum: Samræmdum
stúdentsprófum. Þótt Sjálfstæðisflokkurinn hafi
stundum gefið undir fótinn með aukið frjálsræði
í rekstri skóla hefur aldrei komið til mála af hálfu
flokksins að létta hinni dauðu hönd miðstýringar af
námsframboðinu.
Miðstýrt heilbrigðiskerfi
Í heilbrigðiskerfinu höfum við tekið upp
miðstýringu sem á engan sinn líka í Vesturálfu.
Ríkisspítalar eru óstjórnhæft bákn þar sem
starfsánægja fólks mælist ótrúlega lág og valdleysi
er algert. Tröllaukin stærð spítalans í þessu litla
landi hefur sett annarri heilbrigðisstarfsemi
óeðlilegar skorður. Ríkisstjórnarflokkarnir hafa enga
framtíðarsýn um þróun heilbrigðisþjónustunnar,
ef frá eru talin lítt hugsuð áform um nýtt
„hátæknisjúkrahús“. Þau fela í sér enn frekari
miðstýringu í heilbrigðiskerfinu.
Fjölbreytni er
lykilorðið
Margrét Pála hitti naglann á höfuðið þegar hún
sagði í Silfri Egils að hún væri ekki að tala fyrir einni
lausn á þann veg að 99% barna væru í sjálfstæðum
skólum. Hitt væri hins vegar jafn vitlaust að hafa 99%
barna í ríkisreknum skólum, eins og nú er. Við þurfum
fyrst og fremst að hafa í huga þrjú grundvallaratriði.
Almannaþjónusta á alltaf að standa öllum til boða án
efnahagslegrar mismununar. Það á enginn að geta
borgað sig fram fyrir. Í annan stað þarf kostnaður
almennings að vera sambærilegur eða lægri en
kostnaður af ríkisrekstri. Í þriðja lagi þarf eftirlit með
rekstrinum að vera fullnægjandi. Ef þetta er í lagi er
sjálfsagt mál að auka svigrúm fyrir sjálfstæðan rekstur
í almannaþjónustu. Því við erum ekki öll eins.
þriðjudagur 3. apríl 200712 Umræða DV
Harka er að færast í kosningabaráttuna og hennar verður vart í
DV í dag þegar Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylking-
arinnar, og Magnús Þór Hafsteinsson, varaformaður Frjálslynda
flokksins, takast harkalega á um afstöðu Frjálslynda flokksins í mál-
efnum útlendinga. Frjálslyndir hafa markað sér sértöðu í málinu og
hafa vakið athygli fyrir, sennilega er sá tilgangurinn. Ekki er síður
eftirtektarvert að fylgjast með viðbrögðum allra hinna flokkanna.
Ekki hefur tekist að ná fram umræðu um mál aðfluttra sem hlýtur
samt að þurfa að gera. Ef Frjálsyndi flokkurinn er með öfga í málinu
má það ekki verða til þess að málefnin komist ekki á dagskrá. Það
er eitt.
Hitt er annað að þegar svo stutt er til kosninga, rétt rúmur mán-
uður, er eðlilegt að titrings gæti hér og þar. Einkum og sér í lagi
hjá þeim sem eiga undir högg að
sækja. Það eiga þau bæði, Ingi-
björg Sólrún og Magnús Þór, sam-
eiginlegt. Flokkar þeirra hafa mun
minna fylgi en þau bæði vilja. Það
er siður stjórnmálamanna sem
þurfa að sækja hratt og ákveðið að
hafa uppi stór orð. Þrátt fyrir hót-
anir um útilokanir Frjálslyndra er ólíklegt að þeim verði ekki boðið
að samningaborði verði sú staða uppi eftir kosningar og að sama
skapi er alls endis óvíst að Frjálslyndi flokkurinn rifji upp kröftug
svör kosningabaráttunnar þegar sussað verður á þá við samninga-
borðið. Rokurnar milli þeirra Ingibjargar Sólrúnar og Magnúsar
Þórs eiga það sameiginlegt að vera tilraun til laða fylgi að flokkun-
um þeirra.
Áður hafa verið til flokkar sem hafa haft sérstök mál sem sín
helstu baráttumál, baráttumál sem engir aðrir tóku undir. Þekktast
er Alþýðubandalagið og afstaða þess til Nató og veru hersins á Mið-
nesheiði. Þrátt fyrir eindregna afstöðu Alþýðubandalagsins kom
hún ekki í veg fyrir stjórnarþátttöku flokksins. Helstu hugðarefnin
voru sett til hliðar þar sem þau höfðu ekki hljómgrunn meðal ann-
arra flokka og tekist var á við önnur verkefni. Þannig kann að fara
með frjálslynda. Þeir munu eflaust láta af afstöðu sinni í málefnum
innflytjenda takist þeim að halda sér á þingi með þeim málfutningi
sem þeir ástunda núna. Þannig eru íslenskir stjórnmálamenn. Að-
ferðir þeirra fyrir kosningar hafa sjaldnast nokkuð að segja þegar
þeir þurfa að takast á við veruleikann eftir kosningar. Sjaldnast er
nokkuð að marka það sem sagt er, allra síst í kosningabaráttunni, og
þegar hart er barist fyrir áframhaldandi setu á þingi og möguleikar á
setu í ríkisstjórn opnast þá breytist allt. Við þær aðstæður hafa mörg
prinsippin gleymst, eða verið grafin, þegar það hentar.
Sigurjón M. Egilsson
Þegar hentar
Ríkisrekin kvennakúgun
eða atvinnufrelsi?
Kjallari
Brautarholti 26 · 105 Reykjavík · 512 7000 · dv@dv.is
DV greiðir 2.500 krónur fyrir þau fréttaskot sem
leiða til frétta. Fyrir besta fréttaskot hverrar viku
eru greiddar 5.000 krónur og 10.000 fyrir besta
fréttaskot mánaðarins.
512 7070
frettaskot@dv.is
Það er siður stjórnmála-
manna sem þurfa að
sækja hratt og ákveðið
að hafa uppi stór orð.
Umbrot: dV. Prentvinnsla: prentsmiðja Morgunblaðsins. Dreifing: Árvakur. dV áskilur sér rétt til að
birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.
Útgáfufélag: Dagblaðið-Vísir útgáfufélag ehf.
StjóRnaRfoRmaðuR: Hreinn loftsson fRamkVæmDaStjóRi: Hjálmar Blöndal
RitStjóRi og áByRgðaRmaðuR: Sigurjón m. Egilsson
fulltRÚi RitStjóRa: janus Sigurjónsson
fRéttaStjóRi: Brynjólfur Þór guðmundsson auglýSingaStjóRi: auður Húnfjörð
Ósigrar í Hafnarfirði
Alcan tapaði kosningum um
stækkun álversins í Straumsvík á
laugardaginn eins og landsmönn-
um er kunnugt. Það vekur þó at-
hygli að kosningastjóri Alcans var
hinn rómaði Gunnar Steinn Páls-
son sem var kosningastjóri Ólafs
Ragnars Grímssonar á sínum
tíma í forsetakosningum. Þrátt fyr-
ir nokkuð farsælan feril þá vekur
athygli hversu oft hann hefur beðið
ósigur í Hafnarfirði. Hann var til að
mynda kosningastjóri Sjálfstæðis-
flokksins árið 2003, sem tapaði illa
fyrir Samfylkingunni í Hafnarfirði
það ár. Þá var hann einnig ráðgjafi
fyrir Jakob Frímann Magnússon
sem bauð sig fram til prófkjörs í
Suðvesturkjördæmi á síðasta ári.
En hann reyndist ekki jafnsigur-
sæll og hann vonaði það ár.
Tíðindalaus fundur
Margir hafa lagt í vana sinn að
gagnrýna vöxt í utanríkisþjónust-
unni og tíð ferðalög stjórnmála-
manna til erlendra landa. Segja
þetta hinn mesta óþarfa sem skili
í raun og veru engu fyrir land og
þjóð. Á móti er bent á að þetta geti
leitt til aukinna
samskipta
ráðamanna
eða styrkt þau
tengsl sem eru
fyrir. Ljósvaka-
miðlarnir fjöll-
uðu nokkuð
um fund Geirs
H. Haarde for-
sætisráðherra
og Freder-
iks Reinfeldt, forsætisráðherra
Svíþjóðar. Lá fjölmiðlamönnum
meðal annars hugur á að vita hver
kjarnorkuáform Svía væru. Starfs-
mönnum forsætisráðuneytis virð-
ist ekki hafa þótt mikið til fund-
arins koma. Á vef ráðuneytisins
er slóð á frétt um fundinn, þeg-
ar smellt er á hana blasir við auð
síða.
Leyndardómsfullur Lúðvík
Nú þegar einar tvísýnustu kosn-
ingar seinni ára eru að baki, ekki
þó þær tvísýnustu því komið hefur
fyrir í sveitar-
stjórnarkosn-
ingum að kasta
hafi þurft upp
krónu til að
ráða úrslitum,
velta menn
forminu nokk-
uð fyrir sér.
Jón Sigurðs-
son iðnaðar-
ráðherra hef-
ur sagt að atkvæðagreiðslan hafi
ekkert lagalegt gildi og fulltrúar
Samtaka atvinnulífsins auk ann-
arra hafa gagnrýnt hversu seint í
ferlinu var ákveðið að efna til at-
kvæðagreiðslu. Einn maður hef-
ur þó öðrum fremur uppskorið lof
eða last manna, Lúðvík Geirsson,
bæjarstjóri í Hafnarfirði. Maður-
inn sem þagði allan tímann um
hvaða afstöðu hann hefði og gerir
enn. Spurning hvort hann þurfi að
skrifa ævisögu svo aðrir fái að vita
hvernig hann kaus.
SandKorn
Þú steigst beint á bananahýði og dast ekki! Þetta er einfaldasti brandarinn af þeim öllum
og þú fattaðir hann ekki einu sinni, Hjálmar! Þú ert leiðinlegasti maður í heimi! Ég vil
skilnað!
Árni PÁLL Árnason:
lögfræðingur skrifar
„Skólastjórnendur og kennarar hafa
sífellt minni ráð yfir tíma sínum og eru
bundnir af ósveigjanlegri
aðalnámskrá.
Sjálfstæðisflokkurinn
hefur farið með stjórn
menntamála í 20 ár af
síðustu 23 árum.“
Útvatnaður saltfiskur án beina til að sjóða
Sérútvatn. saltfiskur án beina til að steikja
Saltfisksteikur (Lomos) fyrir veitingahús