Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.2007, Qupperneq 15
DV Sport þriðjudagur 3. apríl 2007 15
Sport
Þriðjudagur 3. apríl 2007
sport@dv.is
allt um leiki gærkvöldsins í iceland-express deildinni. sjá bls 16-17.
Stórleikir í Meistaradeildinni í kvöld
Sigurður Ragnar Eyjólfsson er á leið á UEFA Pro þjálfaranámskeið:
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, lands-
liðsþjálfari kvenna í knattspyrnu, er á
leið í UEFA Pro Licence þjálfaranám-
skeið hjá enska knattspyrnusamband-
inu. Námskeiðið stendur yfir í eitt
ár. Aðeins tuttugu manns fengu inn-
göngu á þetta námskeið en þetta er
æðsta stig þjálfunarmenntunar sem
UEFA viðurkennir.
„Ég ætla að ljúka við þetta nám með
það fyrir augum að sjá síðan í framtíð-
inni um að skipuleggja slíkt nám fyr-
ir KSÍ. Árið 2010 þurfa allir þjálfarar í
tveimur efstu deildum karla að hafa
þessa þjálfaragráðu,“ sagði Sigurður en
hann kláraði UEFA A og B gráðuna hér
á landi. KSÍ getur þó ekki boðið upp á
Pro Licence gráðuna sem stendur en
breyting mun verða á því.
„Við getum vonandi farið að bjóða
upp á þetta námskeið hér á landi
eða vera í samvinnu við enska knatt-
spyrnusambandið. Það á eftir að
koma í ljós hvort við fáum þjálfara
hingað eða förum út með hóp,“ sagði
Sigurður en KSÍ hefur verið að und-
irbúa farveginn fyrir þetta í nokkurn
tíma. Heilmiklar kröfur eru gerðar
á þessum námskeiðum, það er um-
fangsmikið og dýrt.
„Það tekur eitt ár að ljúka nám-
skeiðinu og viðmiðið er að þeir sem
teknir eru inn séu hæfir til að vera
framkvæmdastjórar í tveimur efstu
deildunum á Englandi,“ sagði Sig-
urður en námskeiðið skarast ekkert á
störf hans með kvennalandsliðinu.
Aðeins einn íslenskur þjálfari hefur
þessa menntun í dag, Teitur Þórðar-
son hjá KR. „Það starfa margir metn-
aðarfullir þjálfarar hér á landi sem
hafa áhuga á að taka þetta námskeið
en það hefur samt verið erfitt fyrir þá.
KSÍ er ekki með það sem stendur og
mjög fáir sem komast að hjá knatt-
spyrnusamböndum erlendis þar sem
þau vilja frekar taka heimamenn inn,“
sagði Sigurður.
Mun skipuleggja náMið hérlendis
Sigurður Ragnar Verður líklega annar
íslenski þjálfarinn sem hlýtur uEFa pro
réttindi.
Oddaleikir
framundan