Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.2007, Síða 17
DV Sport þriðjudagur 3. apríl 2007 17
Dirk Nowitzki er líklegur til að verða valinn verðmætasti leikmaðurinn:
Mun Nowitzki brjóta blað í sögu NBA?
Þjóðverjinn Dirk Nowitzki, leik-
maður Dallas Mavericks í NBA
deildinni, gæti brotið blað í sögu
deildarinnar ef hann verður valinn
verðmætasti leikmaður hennar. Ef
hann fær hinn svokallaða MVP-bikar
verður hann fyrsti leikmaðurinn til
þess sem hvorki er fæddur í Banda-
ríkjunum né fór í gegnum skóla þar.
Það gæti því verið stórt skref fyrir evr-
ópska leikmenn í NBA ef Nowitski
verður valinn verðmætastur.
Reyndar hafa leikmenn verið vald-
ir verðmætastir sem ekki eru fæddir í
Evrópu, Steve Nash frá Kanada og
Hakeem Olajuwon frá Nígeríu en báð-
ir léku þeir þó körfubolta í bandarísk-
um háskólum. Þá fengu þeir aðeins
lítinn hluta af þjálfun sinni í Evrópu.
Nowitzki kom til Bandaríkjanna árið
1998 frá Þýskalandi. Hann var tvítug-
ur að aldri en nú níu árum síðar hefur
hann tekið þátt í sex stjörnuleikjum
og er að fá að upplifa hluti sem aðr-
ir evrópskir körfuboltamenn hafa að-
eins getað látið sig dreyma um.
Nowitzki er af mörgum talinn
besti körfuboltamaður sem hef-
ur komið frá Evrópu en hann segist
sjálfur hugsa um liðið. „Mín eigin
frammistaða er ekki efst í huga mér
núna. Ég vona að liðið sjálft nái eins
langt og hægt er. Það væri þó óneit-
anlega ekki leiðinlegt eftir tuttugu ár
að geta sagt: Vissuð þið að ég átti frá-
bær ár og hjálpaði liðinu mínu mik-
ið,“ sagði Nowitzki.
Leikmenn frá Evrópu hafa oft
spilað stórt hlutverk í NBA deildinni
en aldrei hafa þeir verið taldir líklegir
til að geta leitt lið sitt til meistaratit-
ils eða vinna MVP-bikarinn. Annað
gildir þó um Nowitzki.
elvargeir@dv.is Verðmætur þjóðverjinn dirk Nowitzki er einn besti leikmaður NBa-deildarinnar.
ÍÞRÓTTAMOLAR
MalDiNi bjartsýNN
paolo Maldini, hinn reynslumikli
leikmaður aC Milan, er bjartsýnn á að
ítalska liðið nái að endurtaka leikinn
frá síðasta ári og
leggja þýska liðið
Bayern München
að velli í Meistara-
deildinni. í fyrra
vann Milan 4-1
heimasigur á
Bæjurum í sömu
keppni. „Bayern
er að mestu leyti
með sama
leikmannahóp og í fyrra og það sama
á við um okkur. Ég á alveg von á
svipuðum leik og í mars. það er ekki
gott að þurfa að byrja á heimavelli en
það þarf ekki að vera slæmt heldur.
Bayern er hefðbundið þýskt lið, er
með líkamlega sterka leikmenn sem
aldrei gefast upp,“ sagði Maldini.
VaN Gaal Vill þjálfa á HM
louis van gaal ætlar að sýna aZ
alkmaar hollustu sína en nýr
samningur hans við félagið hefur
klásúlu um að
hann geti þjálfað
á Heimsmeistara-
mótinu 2010 í
Suður-afríku.
Samningur hans
við aZ átti að
renna út í sumar
en hann hefur
skrifað undir
framlengingu til
tveggja ára í viðbót. Van gaal þjálfaði
landslið Hollands á Evrópumótinu
2002 en var þó ekki með á heims-
meistaramótinu tveimur árum síðar.
Samkvæmt nýjum samningi hans
getur hann stýrt landsliði á HM 2010 í
Suður afríku en það verður þá að
vera stórlið. Hann má taka við
einhverjum af fimm efstu þjóðum
heimslistans.
slæM áHrif
gamla goðsögnin Bobby Charlton,
stjórnarmaður hjá Manchester
united, segir að vangaveltur um
framtíð Cristianos ronaldo hjá
félaginu hafi
bæði slæm áhrif á
leikmanninn og
félagið. real
Madrid er meðal
þeirra liða sem
opinberlega hafa
lýst yfir áhuga á
ronaldo þótt
portúgalski
leikmaðurinn hafi
sjálfur sagst vera ánægður hjá united
og vilja framlengja samning sinn þar.
„Félagið hefur ekkert gefið út um að
hann sé til sölu. Við viljum halda
ronaldo og hann vill vera áfram. Ég
sé ekkert sem kemur í veg fyrir að
hann verði hérna áfram,“ sagði
Charlton.
Nýr Völlur liVerpool
Eftir tvo mánuði munu framkvæmdir
við nýjan knattspyrnuvöll í liverpool
hefjast. Bandarískir eigendur
fótboltafélagsins liverpool héldu um
síðustu helgi fund með borgaryfir-
völdum sem samþykktu áætlanir
varðandi byggingu nýja vallarins.
Hann mun taka um 60.000 áhorfend-
ur í sæti. Samkvæmt áætlunum á
hann að verða tilbúinn árið 2010 en
framkvæmdir á borð við þessar eiga
þó oft til að tefjast. rætt var um að
láta liverpool deila velli með Everton
en það er nú út úr myndinni.
ekkert VaNMat
rafael Benítez, knattspyrnustjóri
liverpool, segist ákveðinn í að
vanmeta ekki hollenska liðið pSV
Eindhoven fyrir
viðureign liðanna
í Meistaradeild-
inni. „Enginn ætti
að láta glepjast af
þeirri lygi að pSV
muni ekki gera
allt sem það
getur til að
komast í
undanúrslitin.
liðið vann
arsenal í síðustu
umferð og það má alls ekki vanmeta.
Vissulega eiga þeir í einhverjum
vandræðum í vörninni en það er ekki
hægt að segja hvaða áhrif það hefur
þegar á hólminn er komið. þeir vita
að þeir þurfa að skora gegn okkur á
heimavelli því þetta verður ekki
auðvelt fyrir þá á anfield,“ sagði
Benítez.
Báðar viðureignirnar í undanúrslitum í karlaflokki fara í oddaleik en Njarðvíkingum
mistókst að tryggja sér áfram í úrslitaeinvígið í Grindavík í gær. Grindvíkingar unnu frek-
ar þægilegan og sanngjarnan tíu stiga sigur.
Fjórða viðureign Grindavíkur
og Njarðvíkur í undanúrslitum Ís-
landsmóts karla í körfubolta var
háð í Grindavík í gær. Heimamenn
unnu sanngjarnan sigur með tíu
stiga mun 81-71 en staðan í hálfleik
var 42-37. Íslandsmeistarar Njarð-
víkur höfðu yfir í einvíginu 2-1 fyr-
ir þennan leik en þrjá sigurleiki þarf
til að tryggja sér áfram og því gátu
þeir slegið granna sína úr keppninni
með sigri. Það tókst þó ekki og liðin
þurfa að mætast að nýju í oddaleik á
fimmtudag.
Grindavík með hörkulið
Flestir bjuggust við sigri Njarð-
víkur í þessu einvígi og er það lík-
lega þannig enn, Grindvíkingar eru
hinsvegar sýnd veiði en ekki gef-
in. Friðrik Stefánsson, leikmaður
Njarðvíkur, sagði í viðtali við Sýn
eftir leikinn í gær að Grindvíking-
ar hafa ekki komið honum á óvart.
„Nei alls ekki, þetta er úrslitakeppni
og Grindavík er með hörkulið. Það
eru alltaf fimm lið inni á vellinum
að spila körfubolta hverju sinni og
það skiptir engu máli hversu stór
hópurinn er,“ sagði Friðrik sem var
greinilega fullur tilhlökkunar fyrir
oddaleikinn.
„Það er ekki hægt að biðja um
neitt betra en fimm leiki í undan-
úrslitum. Þetta er það sem maður
hefur verið að djöflast fyrir í marga
mánuði og þá er ekki hægt að væla
neitt um álag. Ég væri til í að klára
oddaleikinn bara núna,“ sagði Frið-
rik.
Það var mjög góð stemning á
leiknum í gær og áhorfendur létu
vel í sér heyra. Það mátti glögglega
sjá það að Grindvíkingar vildu alls
ekki fara strax í sumarfrí.
einbeitingarleysi Njarðvíkinga
Sigur Grindavíkur var frek-
ar þægilegur en liðið hafði betur í
öllum leikhlutunum fjórum í gær.
Njarðvíkingar voru aldrei mjög
langt undan en undir lokin kláruðu
Grindvíkingar þetta á góðum varn-
arleik. Jonathan Griffin var stiga-
hæstur í liði heimamanna með 28
stig auk þess sem hann tók sex frák-
öst en Páll Axel Vilbergsson skoraði
23 stig. Páll Kristinsson átti hreint
frábæran leik í gær, skoraði tólf stig
og tók þrettán fráköst.
„Þetta var hörkuleikur alveg út í
gegn. Við erum að toppa á réttum
tíma, mættum ákveðnir til leiks og
spiluðum góða vörn.
Það er vörnin sem skiptir öllu
máli og með baráttu er allt hægt í
þessu. Við erum tilbúnir og höfum
verið á mikilli siglingu þannig að við
óttumst ekkert,“ sagði Páll í viðtali
við Sýn eftir leikinn.
Ekki var eins létt yfir Friðriki
Stefánssyni. „Þeir stjórnuðu hrað-
anum og við reyndum of mikið að
keyra inn í teig hjá okkur sem er
ekki búið að ganga nægilega vel upp
á síðkastið. Öll þessi vítaskot og all-
ir þessir töpuðu boltar, þetta er bara
einbeitingarleysi sem á ekki að sjást
hjá jafn góðu liði og okkur.“
Það var enginn sem stóð upp
úr í liði Njarðvíkur. Brenton Birm-
ingham skoraði sautján stig og átta
fráköst, Igor Beljanski var með sex-
tán stig og þeir Friðrik Stefánsson og
Jeb Ivey skoruðu fjórtán stig hvor.
Það má fastlega reikna með mik-
illi spennu í oddaleikjunum tveimur
sem fram fara á Skírdag.
elvargeir@dv.is
GRindAvÍk
Að TOppA á
RéTTuM TÍMA