Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.2007, Síða 20
þriðjudagur 3. apríl 200720 Menning DV
Menning
Ferð til
fortíðar
Í dag flytur Eggert Þór Bern-
harðsson, dósent í menning-
armiðlun, fyrirlesturinn Ferð
til fortíðar - um sögusýningar á
Íslandi. Talsverð gróska hefur
verið í safna- og sýningageir-
anum á undanförnum árum og
sögusýningar hafa verið fjöl-
sóttar, en á tíu ára tímabili hefur
gestafjöldi að söguminjasöfn-
um nærri þrefaldast. Í erind-
inu verður meðal annars rætt
um þessa fjölgun, stöðu safna í
samfélaginu og breytt viðmið og
viðhorf í sýningagerð. Jafnframt
verður fjallað um áherslur í efn-
isvali á sýningum og hugað að
þeirri sögusýn sem þar birtist.
Fyrirlesturinn verður fluttur í
Þjóðminjasafni Íslands og hefst
kl. 12.05.
Cavalleria Rusticana
Uppfærsla óperunnar Cavalleria Rusticana er samstarfsverkefni Íslensku
óperunnar og Óperukórs Hafnarfjarðar. Fjölmenni tekur þátt í sýningunni, fimm
einsöngvarar, 60 manns úr Óperukór Hafnarfjarðar og 40 manna hljómsveit
Íslensku óperunnar. Sýningar í Íslensku óperunni verða aðeins fjórar talsins og
frumsýning er 9. apríl.
Dauðasyndin
öfund
Fjórði fyrirlesturinn um
dauðasyndirnar sjö í fyrirlestra-
röð Borgarbókasafns Reykjavík-
ur verður fluttur miðvikudaginn
4. apríl kl. 17:15. Þá mun Val-
gerður Dögg Jónsdóttir fjalla um
öfund. Fyrirlestraröðin er fengin
að láni frá Akureyri en þar stóð
Amtsbókasafnið að henni ásamt
fleirum. Fyrirlesarar koma úr
ýmsum áttum og lítur hver við-
fangsefnið sínum augum. Dag-
skráin fer fram í aðalsafni Borg-
arbókasafns í Tryggvagötu 15 og
er öllum opin.
Ausa Stein-
berg í Akur-
eyrarkirkju
Leikhúsperlan Ausa Stein-
berg verður sýnd í Akureyrar-
kirkju 4., 5. og 6. apríl. Leiksýn-
ingin, sem unnin er í samvinnu
Leikfélags Akureyrar og Borg-
arleikhússins, er óvenjulegt
leikrit um
níu ára ein-
hverfan of-
vita sem sér
lífið og dauð-
ann í öðru
ljósi en við
flest. Hún er
í senn heill-
andi, fyndin
og ótrúlega skemmtileg. Ausa
elskar óperutónlist og þráir að
deyja eins og dívan á sviðinu
við dynjandi lófatak áhorfenda.
Sem fyrr er Ilmur Kristjánsdótt-
ir í hlutverki Ausu en hún hefur
fengið frábært lof fyrir túlkun
sína.
Þrátt fyrir að hann sé ekki enn
kominn út, er geisladiskurinn Cort-
es, með Garðari Thor í 13. sæti á
vinsældalista HMV-verslananna í
Bretlandi, yfir klassíska tónlist. Á
disknum syngur Garðar 12 lög, en
fær jafnframt aðstoð frá söngkon-
unum Heather Small og Katherine
Jenkins í tveimur þeirra. Heather
Small er þekktust fyrir söng sinn
með hljómsveitinni M People og
Katherine Jenkins er rísandi stjarna
í klassíska söngheiminum.
Jákvæð viðbrögð
Fyrsti geisladiskur Garðars,
Cortes, kom út hérlendis haust-
ið 2005 og var langsöluhæsta inn-
lenda hljómplata þess árs. Sá disk-
ur varð kveikjan að samnefndum
diski sem von er á í Bretlandi og ef
marka má vinsældalista HMV er
von á góðum viðtökum. „Þetta eru
æðislegar fréttir, maður er náttúru-
lega glaður yfir þessu,“ segir Garð-
ar Thor, sem staddur er hérlendis í
stuttu páskafríi um þessar mundir.
„Þessi plata er í grunninn sú sama
og kom út hér á Íslandi, en við
skiptum út þremur lögum og bætt-
um við tveimur. Hin sjö, sem voru
á gömlu plötunni voru svo endur-
hljóðblönduð. Platan kemur þar af
leiðandi ekki út hérlendis, því svo
stór hluti hennar hefur þegar kom-
ið út.“ Garðar segist ekki geta neitað
því að hann hafi fundið fyrir nokkr-
um áhuga fyrir útgáfunni í Bret-
landi. „Já, það virðist vera áhugi,
ég get ekki sagt annað. Fólk er já-
kvætt í garð plötunnar og þess sem
við erum að gera. En nú er bara að
bíða og sjá hvað gerist, maður veit
aldrei,“ segir þessi hógværi söngv-
ari.
Í nógu að snúast
Cortes kemur út þann 16. apríl
og útgáfunni verður fylgt eftir með
umfangsmikilli kyningu í útvarpi
og sjónvarpi. Garðar er einnig bók-
aður á tónleika í allt sumar víðs-
vegar um Bretland, þar sem hann
kemur meðal annars fram með
Katherine Jenkins og Russel Wat-
son. Hann hefur því í nógu að snú-
ast þar í landi á næstunni. Í byrjun
júní kemur Garðar hins vegar heim
til Íslands, þar sem Carmen er á
dagskrá með Sinfóníuhljómsveit
Íslands, en annars er ekki fyrirhug-
að tónleikahald hérlendis.
Lofar góðu
Það er fyrirtæki Einars Bárðar-
sonar, Believer, sem gefur diskinn
út. Einar segir ástæðuna fyrir þess-
um mikla áhuga vera einfalda. „Það
er nú bara vegna þess að Garðar er
svo góður,“ segir hann. „Við höfum
unnið markvisst kynningarstarf frá
því í október á síðasta ári og mér
sýnist við vera á réttri leið með
þetta þó maður vilji svo sem aldrei
vera allt of bjartsýnn. En því er ekki
að neita að gott gengi á lista HMV
lofar mjög góðu um framhaldið,“
segir Einar.
Geisladiskurinn Cortes kemur út eftir tvær vikur í Bretlandi
og er þegar kominn á þarlendan metsölulista. Á honum eru 12
lög í flutningi Garðars Thors Cortes tenórsöngvara.
TónlisT
Maður veit aldrei
Einar Bárðarson
„garðar er bara svo góður.“
Nemendur í Myndlistarskóla Reykjavíkur nota nútímaleg efni úr eigin umhverfi:
Áhugaverðar hugmyndir vöknuðu á safninu
Kennarar skólans fóru með
nemendur á sýninguna „Með silfur-
bjarta nál - spor miðalda í íslenskum
myndsaumi,“ sem nú stendur yfir í
Þjóðminjasafninu. Þar könnuðu nem-
endur mismunandi útsaumsaðferðir
sem beitt var við vinnslu verkanna
og fræddust um
uppruna þeirra.
Í framhaldi af
því unnu þeir útsaumsverk og teikn-
ingar sem nú eru til sýnis á Torginu
í Þjóðminjasafni Íslands. Sýningin
ber yfirskriftina „Með silfurbjarta nál
í ævintýraskógi Rousseau.“ Þetta er
í annað sinn sem nemendur barna-
og unglingadeildar skólans sýna verk
sín á Torginu. Í janúar árið 2006 unnu
nemendur út frá kveikjunni „Söfn og
safnarar,“ og kenndi þar ýmissa grasa.
Veigamikill þáttur í námi Myndlistar-
skólans er að viða að sér áhugaverð-
um hugmyndum og er þá listasagan
skoðuð og farið á listasöfn. Rann-
sóknarleiðangrar á Þjóðminjasafn-
ið eru fastir liðir. Myndalistarskólinn
heldur upp á 60 ára afmæli sitt um
þessar mundir. Skólinn er sjálfseign-
arstofnun sem rekin hefur verið af
myndlistarmönnum frá stofnun hans
árið 1947. Myndlistarkennsla barna
hefur alla tíð verið mikilvægur þáttur
í starfi skólans en nemendur, sem eru
um 400 talsins, eru á öllum aldri, frá
þriggja til 80 ára. Sýningin á Torginu
stendur til 29. apríl.
Að sögn Hildar Bjarnadóttur, kenn-
ara við Myndlistarskólann í Reykja-
vík, komast gestir sem mæta á sýn-
inguna í Bogasalnum ekki hjá því að
sjá myndir nemendanna.
,,Þegar við vorum að hengja upp verk-
in hinkruðu allir sem áttu leið um.
Verkin vöktu athygli þeirra og for-
vitni og vöktu upp margar spurning-
ar. Engin formleg opnun var á sýning-
una og bíður það betri tíma. Líklega
bjóðum við nemendum, foreldrum
og öðrum aðstandendum á síðbúna
opnun eftir páska. Að sýningu lokinni
fá listamennirnir að taka listaverkin
með sér heim,“ segir Hildur.
myndlisT
Einbeittir nemendur unnið að
verkum fyrir sýningu Myndlistar-
skólans í þjóðminjasafninu.