Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.01.1986, Side 22

Læknablaðið - 15.01.1986, Side 22
14 1986; 72: 14-8 LÆKNABLAÐIÐ Gunnar Biering, Gunnlaugur Snædal, Helgi Sigvaldason, Jónas Ragnarsson Fæðingar á íslandi 1972-1981,12. grein: VAXTARRIT FYRIR ÍSLENSKA NÝBURA INNGANGUR Vaxtarrit fyrir nýbura sýna þyngd, lengd og ummál höfuðs við mismunandi meðgöngu, frá 28 til 44 vikna meðgöngu. Vaxtarrit eru einkum notuð í tvennum tilgangi. í fyrsta lagi til þroskamats á börnum við fæðingu. Kemur slíkt mat að gagni meðal annars þegar vafi leikur á um raunverulega lengd meðgöngunnar. í öðru lagi eru rit þessi notuð til að afmarka ákveðna hópa áhættubarna, t.d. léttbura, þ.e. létt börn miðað við lengd meðgöngu. Ef nýburum er raðað eftir þyngd teljast þau börn léttburar hér á landi, sem lenda í neðsta tíunda hlutanum (10. persentíl) við ákveðna meðgöngulengd. Árið 1972 voru tekin í notkun á Fæðinga- deild Landspítalans vaxtarrit sem notuð höfðu verið um skeið við ríkisspítalann í Kaup- mannahöfn. Vaxtarrit þessi byggðu á sænsk- um (Engström o.fl.) (1), enskum (Tizard o.fl.) og bandarískum mælingum (Lubchen- co o.n.) (2). Úrvinnsla upplýsinga um fæðingar á ís- landi frá árinu 1972 og síðan, svo og saman- burður við fæðingaskrár á Norðurlöndum (3, 4) leiddi i Ijós greinilegan stærðarmun á nýburum þessara þjóða (5). Vöxtur íslenskra barna í legi er svipaður og hjá nágranna- þjóðum okkar, allt fram að 37. viku með- göngutímans. Eftir það vaxa íslensku börnin hraðar, og eru við 40 vikna með- göngu að meðaltali 100-200 grömmun þyngri en önnur norræn börn. Erlend vaxtarrit virtust því ekki hæfa íslenskum nýburum og var þá ákveðið að gera ný vaxtarrit, er tækju mið af íslenskum aðstæðum. Við gerð vaxtarrita er talið æskilegt að lögð sé áhersla á eftirtalin faraldsfræðileg atriði (6): I fyrsta lagi, að byggt skuli á mælingum Frá Landspítalanum (Fæðingaskránni). Barst ritstjórn 11/09/- 1985. allra fæddra barna hjá vel afmörkuðum þjóðfélagshóp. í öðru lagi, að mælingar á stærð við fæðingu og upplýsingar um lengd meðgöng- unnar séu nákvæmar og staðlaðar. í þriðja lagi, að útilokanir (exclusions) á efnivið séu ákvarðaðar nákvæmlega. Mismunandi skoðanir hafa verið á því, hvaða börn eigi að telja með við gerð vaxtarrita. Þó hefur ríkt samkomulag um, að sleppa beri andvana fæddum börnum og fjölburum, áþeim forsendum, að stærð þeirra sé oft afbrigðileg og gefi því ekki rétta mynd af meðalstærð við mismunandi meðgöngu. Hins vegar hefur ríkt ringulreið um aðrar útilok- anir. Sumir hallast að því að sleppa beri öllum nýburum með vanskapanir, sjúkdóma og önnur afbrigði. Aðrir hafa ekki gengið svo langt. Þau vaxtarrit, sem birt hafa verið fram til þessa eru því ekki ávallt samanburðarhæf. Unnið er að samhæfingu á gerð vaxtarrita í heiminum á vegum FIGO (Alþjóðasamtaka fæðinga- og kvensjúkdómalækna) og WHO (Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar). Á fundi sem haldinn var haustið 1984 á vegum þessara samtaka var mælt með því að við gerð vaxtarrita fyrir hverja þjóð skuli aðeins þrem hópum barna sleppt, þ.e. andvana fæddum, fleirburum og vansköpuðum börnum. Stærðarmunur á drengjum og stúlkum hefur í för með sér að mælt var með því að vaxtarrit væru gerð fyrir hvort kyn fyrir sig. Vaxtarrit, byggð á mælingum íslenskra nýbura, hafa ekki verið til áður og eru nú kynnt hér í þessari grein. Þau byggja á áðurnefndum grundvelli. Vaxtarrit þyngdar Árin 1972-1981 fæddu íslenskar mæður alls 43.364 börn hér á landi. Við gerð vaxtarrits fyrir þyngd voru útilokuð 2.384 börn eða 5,5%, þannig að þyngdarritið er byggt á mælingum á 40.980 börnum. Að sjálfsögðu getur sumum börnum verið sleppt af mörgum ástæðum. í töflu I er sýnt hversu mörgum

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.