Læknablaðið - 15.01.1986, Page 29
Ábendingar: Exem og aðrir húðsjúkdómar, þar sem sterar eiga við. Benda má á, að hér er ekki um sterkan stera að ræða, og því unnt að nota lyfið á
viðkvæma húð 9g þar, sem sterkari sterar valda slæmum aukaverkunum, t. d. í andliti.
Frábendingar: ígerðir í húð af völdum baktería, sveppa eða veira. Varicella. Vaccinia. Lyfið má ekki bera í augu.
Aukaverkanir: Langvarandi notkun getur leitt til húðrýrnunar og rosacealíkra breytinga í andliti, þó síður en sterkari sterar.
Varúð: Hafa verður í huga, að sterar geta frásogast gegnum húð.
Skammtastærðir handa börnum og fullorðnum: Ráðlegt er að bera lyfið á í þunnu lagi 1-3 sinnum á dag.
Pakkningar: Áburður: 20 ml. 100 ml. 250 ml.
Krem: 15 g. 30 g. 50 g. 100 g.
Smyrsli: 15 g. 30 g. 50 g. 100g.
Pharmaco Inc. Hörgatún 2, P.O. box 231IS 210 Garðabær, Telephone 91-44811