Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.02.1986, Blaðsíða 45

Læknablaðið - 15.02.1986, Blaðsíða 45
LÆKNABLAÐIÐ 53 orsakast af langri veru í mengun lífrænna leysiefna er hægt að skipta annars vegar í sjúkdómsmynd sem lýsir sér aðallega með almennum geðrænum einkennum og hins vegar í langvinna eitrunarheilaskemmd. Þessi fyrirbrigði eru ekki endilega sjúkdómsstig, sem einstaklingurinn gengur í gegnum í átt að alvarlegri sjúkdómum. Mörkin á milli skemmdanna eru oft óljós. 5. Vinnuskilgreiningu á fyrirbrigðinu miðtaugakerfisskemmdir af völdum leysiefn- is þarf að setja fram, til þess að auðvelda samanburð á niðurstöðum faraldsfræðilegra rannsókna og koma á sjúkdómsgreiningar- flokkun einstakra sjúklinga. 6. Þegar grunsemdir vakna um að einhver sé haldinn landvinnri eitrunarheilaskemmd ætti fyrst að gera klíniska rannsókn á starfs- manni, og niðurstöður hennar ættu að ráða vali og umfangi þeirra tauga- og sálfræði- rannsókna, sem nauðsynlegar eru til aðskil- greina skemmdirnar frekar. 7. Tauga- og sálfræðiprófætti að staðlatil þess að tryggja og gildisstyrk framsýnna rannsókna, og að niðurstöður séu sambæri- legar. 8. Heilsufarskannanir á starfsmönnum, sem verða fyrir mengun lífrænna leysiefna, ættu að felast í nákvæmri læknisskoðun, svo og stöðluðu viðtali eða skoðunar og atvinnu- sögu (tegundum lífrænna leysiefna, magni og lengd mengunar), ætti að beita völdum stöðluðum tauga- og sálfræðiprófum. Samt ætti ekki að nota þessar síðastnefndu athuga- nir sem vanapróf, án klínískra ábendinga um vinnutengd taugaáhrif. 9. Gera þarf frekari klínískar tilraunir og faraldsfræðilegar rannsóknir til þess að fá betri innsýn í hvort unnt er að lækna tauga- eituráhrif af völdum lífrænna leysiefna, hvaða heilsufarslega þýðingu þau hafa og hvernig sambandi skammta og áhrifa (dose- effect) og skammta og svörunar (dose-respon- se) er háttað. 10. í ljósi þess, hve alvarlegar tauga- skemmdir og geðræðar truflanir eru og hve lítið er vitað um hvort hægt er að lækna þær og um hugsanleg félagsleg áhrif þeirra þarf strax að leita forvarnaleiða og draga úr mengun lífrænna leysiefna. í aðgerðum ætti að felast efnafræðileg staðfesting á hvaða lífræn leysiefni eru á vinnustöðum, fullkomin merking á í látum, upplýsingar til vinnuveit- enda og starfsmanna. Auk þess almennt og persónubundið eftirlit með umverfi og starfsmönnum. Þessar ályktanir ráðstefnuþátttakenda verða vantanlega til þess að þekking um hættur samfara vinnu við lífræn leysiefni dreifist utan Norðlurlanda. Slíkt yrði að sjálfsögðu til ávinnings starfsmönnum utan Norðurlanda, auk þess sem öll viðleitni hinna stóru iðnríkja á þessu sviði myndi í framtíð- inni hafa endurverkun á Norðurlöndum með bættri tækni og skaðminni efnum eða tak- markaðri notkun lífrænna leysiefna. HEIMILDIR 1. Lindström K. Psychological performances of wor- kers exposed to various solvents. Work Environ Health 1973; 10: 151-5. 2. Knave B, Person HE, Goldberg JM, Westeholm P: Neurologisk och neurofysiologisk undersökning av personal exponerad för reabensin. Arbete och hálsa 1975: 2. 3. Axelson O, Hane M, Hogstedt C. A case - referent study on neuropsychiatric disorders among workers exposed to solvents. Scand J Work Environ Health 1976; 2: 14-20. 4. Mikkelsen S. A cohort study of disability pension and death among painters with special regard to disabling presenil dementia as an occupational disease. Scand J Soc Med, suppl. 1970; 16: 34-43. 5. Olsen J, Sabroe S. A case - referent study of neuropsychiatric disorders among workers exposed to solvents in the Danish wood and furniture industry. Scand J Soc Med, suppl. 1980: 16: 44-9. 6. Lindström K. Riihimáki H, HánninenK. Occupatio- nal solvent exposure and neuropsychiatric disorders. Scand J Work Environ Health 1984; 10: 321-3.

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.