Læknablaðið - 15.09.1986, Blaðsíða 44
214
LÆKNABLAÐIÐ
kannski fyrst og fremst á því atriði, að
heilsugæzlan hefst heima.«
Um sérstöðu Reykjavikur í heilsugæzlumál-
um sagði Ragnhildur, að áherzlan hefði verið
!ögð á að byggja upp heilsugæzlu á lands-
byggðinni. Mjög hefði verið á orði haft, að
þar væru menn mjög illa settir vegna fjar-
lægðar frá öllum meiri háttar heilbrigðis-
stofnunum. Ragnhildur sagði, að forverum
sínum í embætti hefði tekist vel að byggja
upp slíka heilugæzlu, en að sama skapi hefði
ekki tekist að vinna með sama hraða að
uppbyggingu á höfðborgarsvæðinu. Hins
vegar bæri að hafa í huga, að þar ætti fólk
hægara með að nálgast ýmsa þá aðila, sem
veita sérhæfða þjónustu og að þarfir fólks í
mjög fjölmennum sveitarfélögum eins og
Reykjavík væru frábrugðnar því, sem gerist
í afmörkuðum sveitarfélögum. Hún sagði,
að þess bæri þó að geta, að fjölgun heilsu-
gæzlulækna og heilsugæzlustöðva í Reykja-
vík stæði yfir. Aðspurð um, hvort nokkur
fastmótuð heilbrigðisstefna væri til á íslandi
í ljósi þeirrar gagnrýni, sem fram hefur
komið, sagði heilbrigðisráðherra, að það
hlyti að vera bærileg stefna, sem hefði skilað
þeim árangri, sem raun ber vitni.
Guðjón Magnússon aðstoðarlandlæknir
Guðjón Magnússon aðstoðarlandlæknir
sagði, að skipulag heilbrigðisþjónustu hér-
lendis hefði ávallt mikið ráðist af þeim
mönnum, sem hér hefðu komið til starfa.
Mikil áherzla hefði verið lögð á sérhæfingu
á undanförnum árum. Guðjón sagði, að það
væri ekki til nein afdráttarlaus skýring á því,
hvernig heilsugæzlumál standa nú. Margt
gæti komið þar til. Þó bæri að gæta að því,
að þegar lög um heilbrigðisþjónustu voru
sett árið 1973, hafi ekki verið til nægilega
margir menntaðir starfsmenn til að unnt
væri að framfylgja þeim að fullu. Nú væri
svo komið, að starfsmenn eru nægir, en
stjórnmálamenn skortir vilja til að fram-
kvæma lögin, sem þeir settu sjálfir.
Fréttamaður: Borgarlæknir segir, að ekki
leiki vafi á, að Reykvíkingar búi við lakari
heilsugæzlu en fólk úti á landi og hafi gert
það lengi. Hvað veldur því, að Reykjavík
sker sig úr?
Guðjón: »Aðalástæðan held ég, að hljóti að
vera sú, að hér eru svo margar stórar og
miklar heilbrigðisstofnanir. Helztu sjúkra-
hús landsins eru staðsett hér. Hér er Mekka
sérhæfðrar læknisfræði og heilbrigðisþjón-
ustu, og það eru e.t.v. margir, sem halda
þar af leiðandi, að við þurfum ekki eins
mikla heilsugæzlu í Reykjavík.«
Guðjón sagði, að hægt væri að minnka eft-
irspurn eftir óarðbærri sérfræðiþjónustu á
höfuðborgarsvæðinu með því að stórauka
heilsugæzluna og heilsuverndina. Að sögn
Guðjóns eru til á íslandi margir þættir
eðlilegrar heildarheilbrigðisstefnu, en að
öðru leyti vantar stefnuna sjálfa.
Sturla Sigurjónsson sagði frá og talaði við
Ragnhildi Helgadóttur heilbrigðisráðherra
og Guðjón Magnússon aðstoðarlandlækni.
Undanfarið hefur komið fram nokkur
gagnrýni á skipulag heilbrigðisþjónustu hér-
lendis. Bent hefur verið á, að bágborin
heilsugæzla í Reykjavík valdi m.a. mikilli
eftirspurn eftir hlutfallslega dýrri sér-
fræðiþjónustu í borginni. Ólafur Mixa
heimilislæknir telur, að samhengi sé á milli
þessa og óhóflegrar notkunar sýklalyfja.
í erindi, sem Ólafur Ólafsson landlæknir hélt
fyrir nokkru um sýkingavarnir í
sjúkrahúsum kom fram, að sala sýklalyfja
hefur verið 60-100% meiri hérlendis en í
nágrannalöndunum. Hann sagði jafnframt,
að notkunin virtist minni á sjúkrahúsdeild-
um í dreifbýlinu en á höfuðborgarsvæðinu. f
framhaldi af gagnrýni héraðslæknisins á
Egilsstöðum, borgarlænis og aðstoðarland-
læknis á skipulag íslenzkrar heilbrigð-
isþjónustu, sérstaklega varðandi bága
heilsugæzlu á Reykjavíkursvæðinu, var
leitað álits Ólafs Mixa, heimilislæknis, á því,
hvort að hugsanlega væru tengsl á milli óhóf-
legrar notkunar dýrra sýklalyfja og skorts á
hlutfallslega ódýrri heilsugæzlu. (Kvöld-
fréttir 25.05.1986)
Ólafur Mixa heimilislæknir
Ólafur: »Ég er persónulega þeirrar skoðun-
ar, að það séu mjög ákveðin tengsl þarna á
milli. Ef að viss samfella er í umsjón með
sjúklingum, þá getur maður fylgst með hon-
um, jafnvel frá degi til dags og þannig
frestað því eða látið alveg vera að gefa
sýklalyf á þeim forsendum, að þú ert í
stöðugu sambandi við sjúkling. Hins vegar er
freistingin miklu meiri fyrir þá, sem sjá
sjúklingana aðeins við og við og þá i